145. löggjafarþing — 75. fundur,  15. feb. 2016.

ný aflaregla í loðnu.

[16:00]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við nýtingu fiskstofna eins og annarra náttúruauðlinda er sjálfsagt að gera kröfu um að vísindalegar rannsóknir liggi til grundvallar nýtingarstefnunni. En um leið þarf að gera þá kröfu, sé vitnað til vísinda á annað borð, að þau byggi á rannsóknum og ábyggilegum gögnum. Menn eiga ekki að nota vísindin sem rök nema rannsóknir fylgi og þar með nokkuð góð vissa fyrir því hvað hljótist af auðlindanýtingu.

Vísindin sem vitnað er til í tengslum við nýju aflaregluna í loðnunni byggja að hluta til á ágiskunum um náttúruleg afföll loðnustofnsins og áætlun um hrygningarstærðir án þess að fullnægjandi gögn liggi fyrir sem hægt sé að áætla út frá. Þá vaknar spurningin: Er loðnustofninn við Ísland í hættu? Hann kann að hafa rýrnað og vísbendingar eru um það, en er það á kostnað sjálfbærni þessarar tegundar eða kann að vera að það sé meira en nóg af loðnu í sjónum? Til eru fiskifræðingar sem fullyrða að það sé miklu meira en nóg af loðnu í sjónum. Ekki veit ég það en hitt veit ég að hver 100 þús. tonn af loðnu kosta á bilinu 5–7 milljarða, þannig að vitanlega eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi sem þarf að meta með hliðsjón af aflareglunni.

Virðing fyrir umhverfi og krafan um sjálfbærni eru sjálfsögð umhverfissjónarmið þegar nýting náttúruauðlinda er annars vegar. Við eigum að virða þau grunnsjónarmið, en um leið hljótum við að gera kröfu um nákvæmni þegar vísindalegum rökum er beitt og slík nákvæmni er óhugsandi nema rannsóknir séu efldar og vöktun stóraukin. Nú sannast það, sérstaklega (Forseti hringir.) í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem hér hafa verið nefndir, að það getur verið dýrt að spara.