145. löggjafarþing — 76. fundur,  16. feb. 2016.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

458. mál
[14:18]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég skil þetta mál þá er lögum samkvæmt skylt að sveitarfélög veiti þessa þjónustu, fjárhagsaðstoð; það er lögbundið eins og það er í dag.

Ég skal ekki segja hvort það er betra að það sé í höndum ríkisins í gegnum almannatryggingar, en ég held að það sé betra að þetta sé í nærumhverfi viðkomandi og þá eru sveitarfélögin best til þess fallin að koma til móts við virkniúrræði og ýmislegt sem þeim ber skylda til í gegnum sína félagsþjónustu.

Ef við ætlum að nálgast hvern einstakling varðandi hans erfiðleika þá held ég að það sé betra að þetta sé í nærumhverfinu í höndum sveitarfélaga. Ef þetta fer í gegnum almannatryggingar er ég hrædd um að ekki verði hægt að beita jákvæðum virkniúrræðum sem skyldi. Það mundi verða allt of mikið bákn og fjarlægt hverjum einstaklingi.

Ég held að sveitarfélög hafi mörg staðið sig ágætlega en það þarf líka að samræma þessa fjárhagsaðstoð upp á við eins og þetta er í dag; að þetta sé þeim ekki bara í sjálfsvald sett, að það þurfi að vera einhver grunnur sem byggt er á. Auðvitað mega sveitarfélög borga og gera betur við sitt fólk til að hjálpa því aftur út í lífið, en ég held að það þurfi að vera einhver grunnur, eins og viðmið varðandi framfærslu — viðmið velferðarráðuneytisins eru 230–240 þús. kr. á mánuði. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er mjög mismunandi há.