145. löggjafarþing — 76. fundur,  16. feb. 2016.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

458. mál
[14:32]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég er alveg sammála því að það á að vinna með því fólki sem þarna er statt eins faglega og hægt er.

Það þarf að bæta úr því og tryggja það hjá mörgum sveitarfélögum; það er ekkert tryggt að slík aðstoð sé til staðar. Það hefði kannski mátt koma fram í frumvarpinu að verið sé að tryggja að sveitarfélögin bjóði upp á sambærilega góða þjónustu gagnvart þessum hópi.

Hafnarfjörður er nefndur og það er ekkert sem segir mér að það átak hefði ekki gengið alveg jafn vel þó að ekki hefði verið þessi svipa eða skilyrðingar um að fólk missi rétt sinn ef það fer ekki eftir þeim reglum sem sveitarfélagið setur.

Á minni ævi hef ég séð að það er miklu betra að fá fólk til að vinna með sér með góðu en illu. Það er það sem kennarar landsins þekkja og mæður sem hafa alið upp börn sín. Þú nærð betri árangri með því að vinna með fólki undir jákvæðum formerkjum en ekki hóta því; ef þú gegnir ekki og gerir ekki þetta eða hitt þá færð þú ekki nammi á laugardaginn eða eitthvað — svo að maður slái þessu upp í kæruleysi, það er ekki sambærilegt.

En ég held að það þurfi að skoða þetta með mannréttindagleraugum í velferðarnefnd og reyna að tryggja að sveitarfélög samræmi fjárhagsaðstoð sína, að það sé þar einhver grunnur sem er tryggður sem ekki er til staðar í dag; að öryggisnet sé til staðar; að fólk sé öruggt (Forseti hringir.) með sína framfærslu þó að eitthvað bjáti á og erfiðleikar séu hjá því í augnablikinu.