145. löggjafarþing — 76. fundur,  16. feb. 2016.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

458. mál
[14:34]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson spurði hér spurningar, og reyndar var hann fyrr í umræðu búinn að velta upp svipuðum hlutum: Hvers vegna er sú skylda á herðum sveitarfélaga að tryggja mönnum lágmarksframfærslu ef allar aðrar bjargir þrjóta? Af hverju er ríkið ekki með þessa fjárhagsaðstoð, með sambærilegum hætti og það er með stuðning við aldraða og öryrkja? Það er ágæt spurning, en þetta er engu að síður fyrirkomulagið, ekki bara á Íslandi heldur víðast hvar í nálægum löndum og á sér mjög langa sögu. Það hefur mjög lengi verið þannig að nærsamfélagið sér um sína, á að sjá um sína þegar aðrar bjargir þrjóta, hvort sem það er frá ríki eða vinnumarkaði eða annars staðar að. Þetta er aldagamalt. Í seinni tíð hefur það snúið að hlutum eins og grunnframfærslutryggingu og húsnæðisþörfum íbúanna. Þar bera sveitarfélögin skyldu. Nærsamfélagið er ábyrgt fyrir þeim hlutum, að sjálfsögðu í samstarfi við önnur stjórnvöld eftir atvikum.

Þá erum við einmitt komin að því viðkvæma í þessu máli að þetta er neðsta öryggisnetið í samfélaginu og hefur mjög lengi verið. Í raun og veru var það komið til sögunnar á Íslandi áður en miðlægt og skipulagt ríkisvald varð til. Fyrstu stjórnsýslueiningar í landinu urðu í aðalatriðum til utan um það að veita bágstöddum einhverjar bjargir. Þær voru ekki merkilegar í þá daga. Hrepparnir urðu til á Íslandi utan um kannski aðallega tvennt, þetta og refaeyðingu.

Það sem gerir okkur mörg gagnrýnin á málið er að það er ekkert annað sem tekur við. Við erum komin niður á botninn. Það er ekkert annað sem tekur við ef þetta brestur, því allar hinar bjargirnar og hin úrræðin eru tæmd. Það er það sem er svo erfitt að kyngja. Ef þessi aðstoð brestur, sem allir eru sammála um að sé mjög svo takmörkuð og er frekar kinnroðamál hversu lítil hún er oft, og hún er skert um helming, á hvað er það ávísun? Menn geta farið með þau rök að þetta sé að góðu til að ýta viðkomandi aðila út í virkniaðgerðir o.s.frv., en ef eitthvað klikkar og þessum rétti er beitt þá er hann sviptur helmingnum af framfærslunni í tvo mánuði. Hvað á hann að gera á meðan? Verða menn ekki að svara þeirri spurningu áður en þeir fara alla leið? Það má taka aðra fjárhagsaðstoð af honum en þá sem tengist beint börnum á hans vegum.

Ég spyr, herra forseti: Hver er þessi önnur aðstoð? Það er sem sagt heimilt að fella niður aðra fjárhagsaðstoð til hans í allt að sex mánuði í senn. Það getur ekki verið stuðningur vegna barna. En gætu það verið sérstakar húsaleigubætur? Já, sérstakar húsaleigubætur sem sveitarfélögin greiða mundu væntanlega falla undir þetta, heimildargreiðslur eins og segir í lögskýringartextanum. Það er ekki skylda, það eru heimildargreiðslur, væntanlega frá sveitarfélagi. Og ætti þá viðkomandi að búa við það að missa helming af takmörkuðum framfærslueyri sínum í tvo mánuði og sérstöku húsaleigubæturnar í sex mánuði? Ég spyr. Ég skal sjá um að farið verði ofan í saumana á því í velferðarnefnd hvort þetta sé sannarlega svona.

Mér finnst líka þessi neikvæða nálgun vera í raun og veru svo tilefnislaus. Af hverju gera menn ekki tillögu og tilraunir um það í sveitarfélögunum að hafa þetta akkúrat á hinn veginn, prófa í nokkur ár að aðstoða þennan hóp, sem fer fækkandi í, sem betur fer, með batnandi ástandi á Íslandi, með hvötum? Fólki standi til boða stuðningur og það fái jafnvel svolítið greitt ef það fer á námskeið, ef það sækir sér einhvers konar þjálfun eða endurmenntun til að gera sig betur fært út á vinnumarkaðinn aftur.

Það er mikill reginmisskilningur að þessi hópur sé að breyttu breytanda sambærilegur við þá sem hafa verið í fullu fjöri á vinnumarkaði og allt í einu misst vinnuna af því að atvinnurekandinn varð til dæmis gjaldþrota og kannski er erfitt tímabundið að finna starf í staðinn. Þeir eiga jú rétt til atvinnuleysisbóta þó að búið að stytta þann tíma. Þeir eru í allt annarri stöðu en einstaklingur í þessum hópi sem hefur kannski glímt árum saman við erfiðleika, er löngu búinn með bótarétt sinn og er í þeirri hörmulegu stöðu að þurfa að fá framfæri sitt (Forseti hringir.) frá sveitarfélagi. Þess vegna tel ég að samlíkingin yfir í vinnumarkaðsúrræði (Forseti hringir.) og hvataaðgerðir þar sé alls ekki á réttum forsendum byggð.