félagsþjónusta sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir fyrirspurnina. Varðandi frumvarpið og það sem þarf — loforðið á síðasta kjörtímabili var að samræma reglur sveitarfélaganna til að hægt væri að vinna eftir samræmdum reglum í sveitarfélögunum um þessi mál. Það er ekki gert í dag. Það er mjög mismunandi hvernig sveitarfélögin taka á þessu máli og það er gríðarlega mikilvægt að skýra lagarammann um þessi mál og að allir hafi sama rétt og sömu skyldur. Eins og hér kemur fram varðandi 21. gr. a verður sveitarstjórn heimilt að setja í reglur um veitingu fjárhagsaðstoðar skilyrði um að umsækjandi, sem er vinnufær að hluta eða öllu leyti sé í virkri atvinnuleit. Óheimilt verður að skilyrða fjárhagsaðstoð til annars en umsækjanda sem metinn verði vinnufær að hluta eða öllu leyti. Mat á vinnufærni umsækjanda skal byggjast á samræmdu faglegu mati á færni til vinnu.
Það er mikilvægt að þessar reglur gildi alls staðar, hjá öllum sveitarfélögum, ekki bara í Hafnarfirði heldur allt í kringum landið, að þeir sem búi við þessi erfiðu kjör, sem við viljum auðvitað að séu sem fæstir, búi þá við samræmdar reglur. Ég held að þetta lagafrumvarp geri það. Það var ákall frá sveitarfélögunum í landinu um að setja slíkar reglur. Fyrrverandi ríkisstjórn lofaði því og við erum að efna það loforð. Ég trúi því ekki að menn gangi á bak orða sinna með það sem þeir voru búnir að lofa heldur standi við bakið á þessu frumvarpi.