145. löggjafarþing — 76. fundur,  16. feb. 2016.

fríverslunarsamningur við Japan.

22. mál
[17:09]
Horfa

Flm. (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Tollar, jafnvel þó að þeir séu ekki háir, eru oft mikill farartálmi í viðskiptum og það er alveg ljóst að ef okkur tækist að fella niður öll gjöld á innflutningi héðan til Japans þá mundi það að öllum líkindum greiða leið íslensks varnings inn á japanskan markað. Ég er að sjálfsögðu ekki sérfræðingur í því en ég er eins og hv. þingmaður, ég leita ráða hjá mér vitrara fólki.

Þegar ég var á för í Japan síðast átti ég fund með Íslensk-japanska verslunarráðinu og það kom í ljós að ráðið var þess mjög fýsandi að lagt yrði í þessa vegferð. Þeir höfðu reynsluna af því og sögðu að það skipti miklu máli. Þar voru kannski fremstir í flokki Íslendingar og reyndar Japanar sem voru að selja fisk. Þeir töldu að þetta skipti máli varðandi það. Það má ekki gleyma því að Japan er til dæmis mjög mikilvægur markaður fyrir tilteknar sjávarafurðir. Þetta eru kannski helstu rökin.

Rök númer tvö eru þau að niðurfelling tolla eykur og greiðir fyrir viðskiptum og er líkleg til þess að lækka líka verð til neytenda í báðum löndum.

Svo að ég komi að mannréttindaspurningunni þá er það þannig að í þessari þingsályktunartillögu tel ég upp sex rök fyrir því að hægt sé að krefjast þess að slíkar viðræður fari fram þrátt fyrir ákveðið fálæti af hálfu Japana. Meðal þessara röksemda er sú staðreynd að við höfum átt samleið með Japan í krafti þess að við fylgjum ákveðnum grundvallarreglum í okkar þjóðfélagsskipan og við skipum okkur saman í flokk sem berst fyrir lýðræði, reglum réttarríkisins og mannréttindum.

Varðandi Kína þá má hv. þingmaður ekki gleyma því að samhliða þeirri þingsályktunartillögu sem hann vísaði til var líka gerður sérstakur vinnuréttarsamningur við Kína, (Forseti hringir.) þar sem einmitt átti að koma á samtali milli íslenska vinnumarkaðarins og hins kínverska um mannréttindi og ýmislegt sem segja má að sé ekki í lagi í Kína. (Forseti hringir.) Ég er þeirrar skoðunar að samtalið skipti máli. Þetta voru nú mín höfuðrök á sínum tíma og yrðu gagnvart öðrum löndum líka.