145. löggjafarþing — 76. fundur,  16. feb. 2016.

uppbygging áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi.

150. mál
[17:51]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, við höfum kannski mannskapinn hjá Vegagerðinni þótt ég efist reyndar um að miklum mannskap sé til að dreifa í verkefni umfram þau sem Vegagerðin sinnir nú þegar. Gefum okkur samt að við höfum mannskapinn. En höfum við fjármagnið til þess?

Ég hef stundum rætt um að setja ákveðin græn svæði í Reykjavíkurborg í fóstur. Ég hef komið með tillögur um að setja svokallaða róluvelli í fóstur til frjálsra félagasamtaka, fyrirtækja sem sæju sér hag í að setja upp eitthvert upplýsingaskilti um staðinn og þess háttar, koma ábyrgðinni á rekstrinum og viðhaldinu til fimm ára í senn til einhverra slíkra stofnana, félagasamtaka eða fyrirtækja. Mér finnst að minnsta kosti ekki snjallt af hv. þingmanni við framlagningu þessarar þingsályktunartillögu að slá út af borðinu eina hugmynd sem gæti orðið til þess að þessir ágætu áningarstaðir yrðu hirtir og þeim sinnt eins og æskilegt væri, í það minnsta komið upp nauðsynlegri þjónustu. Þetta þarf allt að skoða.

Ég er fyrir fram alls ekkert á móti því að starfshópur sé stofnaður hafi menn mikla trú á starfshópum. Ég leggst ekkert sérstaklega gegn þessari þingsályktunartillögu sem slíkri en mér finnst hins vegar afar brýnt að menn skoði þetta með opnum huga, hugsi þá út fyrir kassann eins og var hér nefnt og slái ekki út af borðinu hugmyndir sem gætu virkað fyrir alla.