145. löggjafarþing — 77. fundur,  17. feb. 2016.

um fundarstjórn.

[15:40]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill af þessu gefnu tilefni segja að forseta barst í morgun ósk frá hv. þingmanni um að taka til máls um fundarstjórn forseta að loknum umræðum um störf þingsins. Forseta var auðvitað ekki kunnugt um efni þeirra ræðna sem voru fluttar undir dagskrárliðnum störf þingsins fyrr en þær höfðu verið fluttar.