þörf á fjárfestingum í innviðum.
Herra forseti. Við ræðum hér um innviðauppbyggingu á Íslandi. Ríkisstjórnin hefur dregið lappirnar í þeim málum og í raun og veru ætti að setja vanrækslugjald á hana fyrir hennar háttalag í því. Það væri vel þess virði að reyna að ná einhverjum fjármunum þannig inn í ríkiskassann. (Gripið fram í.) Dagsektir, já.
Hæstv. fjármálaráðherra hreykir sér af framkvæmdum sem fóru af stað á fyrra kjörtímabili þegar við vorum í þeim sporum að við höfðum ekki mikið milli handanna til framkvæmda. Þá var farið í framkvæmdir upp á 3,5 milljarða á Vestfjörðum og í Norðfjarðargöngin sem nú fer að sjá fyrir endann á. Hæstv. fjármálaráðherra talar þannig að það sé ekkert hægt að gera fyrr en þeim framkvæmdum verði lokið og þetta er auðvitað algerlega til skammar.
Menn hafa ekki staðið sig í stykkinu. Ríkisfjármálaáætlun ber þess ekki vott að mikils sé að vænta í framtíðinni, við uppbyggingu í velferðarkerfinu og innviðum í samfélaginu, sem vissulega er þörf á. Hvort sem ferðamannastraumur er vaxandi eða ekki er mikil þörf á því. Mér svíður alltaf þessi umræða, að ríkið eigi að halda að sér höndum varðandi opinberar framkvæmdir þegar einkaaðilar eru að fjárfesta. Hvar eru einkaaðilar að fjárfesta? Núna hér á höfuðborgarsvæðinu. Það eru til fleiri en eitt efnahagskerfi í þessu landi. Á landsbyggðin alltaf að gjalda þess?
Þegar eitthvað fer í gang hjá einkaaðilum, og þá hér á höfuðborgarsvæðinu, ætlar ríkið að halda að sér höndum og gera ekki neitt? Ríkið hefur ekkert gert þessi þrjú ár sem ríkisstjórnin hefur verið við völd varðandi uppbyggingu í samgöngumálum. Þó að menn geti flaggað Dettifossi er það nú ekki nægilega stórt flagg, hæstv. fjármálaráðherra. Nú verður samgönguáætlun að fara að koma fram og menn að sýna á spilin, að menn ætli að mæta auknum ferðamannastraumi og gera landið byggilegt.