staða ungs fólks.
Herra forseti. Eins og ég nefndi eru sum þeirra mála sem hér eru nefnd ekki á okkar valdsviði, þau eru hjá sveitarstjórnarstiginu. Það á sérstaklega við um leikskólana. Ég er hins vegar sammála hv. þingmanni um fæðingarorlofið. Það hefur verið þrengt um of að réttindum fólks til töku fæðingarorlofs og ég hef margoft talað fyrir því að gera þurfi betur þar. Við höfum verið með aðra forgangsröðun. Við höfum lagt áherslu á aðra málaflokka. En það er komið að því að styrkja fæðingarorlofstökuréttinn.
Ég verð líka að halda til haga séreignarsparnaðarleiðinni sem milli 30 og 40 þúsund manns nýta sér, skattafslátt til að safna fyrir höfuðstól til fyrstu íbúðakaupa. Ég held að eitt helsta hagsmunamál ungu kynslóðarinnar í dag sé að stjórnvöld grípi til markvissari aðgerða til þess að styðja fyrstu íbúðakaupendur enn betur en gert er í dag. Í þeim tilgangi hefur þingið til úrvinnslu nokkur frumvörp frá húsnæðismálaráðherra. Við hyggjumst koma með frekari frumvörp til að styrkja þennan rétt, til dæmis að framlengja réttinn til þess að taka út séreignarsparnað til fyrstu íbúðakaupa og fleira mætti nefna (Forseti hringir.) til þess að það verði áfram eftirsóknarvert að búa á Íslandi og vinna gegn þessari þróun.(Forseti hringir.) Annars held ég að það sé í sjálfu sér jákvætt að ungt fólk fari út fyrir landsteinana og komi svo reynslunni ríkara aftur heim.