145. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2016.

kjaradeila í álverinu í Straumsvík.

[13:36]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Þessari spurningu hv. þingmanns er mjög auðsvarað. Ég ætlast að sjálfsögðu til þess af öllum fyrirtækjum að þau virði samninga og lög. Það á jafnt við um það fyrirtæki sem hann nefnir hér og önnur. Svarið er því einfalt og skýrt.