145. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2016.

kjaradeila í álverinu í Straumsvík.

[13:38]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég er ekki viss um að ég muni ræða þetta við stjórnendur þessa fyrirtækis. Hins vegar er eðlilegt að ræða þetta við forustumenn Samtaka atvinnulífsins og raunar launþegahreyfingarinnar líka. Við í þessari ríkisstjórn hittum þessa aðila reglulega og svona mál eru þar til umræðu. Það tel ég réttan vettvang til að ræða þetta mál.