markmið verkefnisins Ísland 2020 -- sókn fyrir atvinnulíf og samfélag.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Katrín Jakobsdóttir spyr í fyrsta lagi hvort forsætisráðherra hafi fallið frá þeim markmiðum sem sett voru fram í sóknaráætluninni Ísland 2020 og í öðru lagi hvað valdi því að mælikvarðar og markmið áætlunarinnar hafi ekki verið uppfærð á þessu kjörtímabili.
Árið 2010 var kynnt þetta verkefni, Ísland 2020 — sókn fyrir atvinnulíf og samfélag. Verkefnið byggðist á stefnumörkun um framtíðarsýn fyrir Ísland, settir voru 20 mælikvarðar og 30 aðgerðir til að ná markmiðunum. Segja má að verkefnið hafi verið blanda af pólitískri stefnumörkun og vinnulagi við mótun og eftirfylgni hennar. Eftirfylgni við verkefnið dalaði hins vegar mjög eftir því sem leið á síðasta kjörtímabil og var vinnu við verkefnið lítið fylgt eftir, held ég að óhætt sé að segja, á seinni hluta þess kjörtímabils. Pólitískur áhugi á verkefninu virðist þannig hafa verið lítill þegar leið á kjörtímabilið. Þetta kann á einhvern hátt að tengjast þeirri stöðu sem þá var uppi í ríkisstjórninni eins og rifjað hefur verið upp að undanförnu.
Verkefninu var því í raun og veru sjálfhætt. Samningi við einkaaðila um að birta upplýsingar um þróun tölulegra markmiða var sagt upp á árinu 2014. Lítill áhugi var á þessum tölulegu upplýsingum og uppfærsla talnanna hafði í nokkur missiri ekki vakið neina athygli. Því var talið að um óþarfakostnað væri að ræða, ekki síst vegna þess að verkefnið sjálft hafði dottið upp fyrir sem heildstæð stefnumótun.
Hluti af þessari vinnu hefur þó nýst. Farið var af stað með ýmsa vinnu sem enn lifir. Þannig hefur til dæmis vinnu við sóknaráætlanir landshluta verið haldið áfram en í breyttri mynd. Sjálfsagt hefur þátttaka fjölmargra aðila við verkefnið einnig nýst mönnum vel við að hugsa um framtíð landsins á erfiðum tímum og sumt var athyglisvert við hugmyndirnar, vinnulag og framsetningu við þetta verkefni, Ísland 2020. Úr varð hins vegar ekki framtíðarstefnumörkun sem á var byggjandi. Til þess skorti að því er virðist pólitíska eftirfylgni á sínum tíma og verkefnið hafi þar af leiðandi eins og ég nefndi dottið upp fyrir á síðasta kjörtímabili.
Alltumlykjandi verkefni eins og Ísland 2020 eru ekki alltaf líkleg til að skila árangri. Hegðun manna, frumkvæði og sköpun, er flóknara fyrirbæri en svo að hún stýrist af miðstýrðri atvinnustefnu stjórnvalda og allra hugsanlegra hagsmunaaðila. Stjórnvöld geta með aðgerðum haft áhrif á stöðu efnahagsmála, umhverfi til nýsköpunar og dreifingu byggða, svo dæmi séu tekin, en þau geta ekki og eiga ekki með einu allsherjarsamráði að stýra því hvar einstaklingar með hugmyndir og frumkvæði eiga að bera niður fæti.
Í lok síðasta kjörtímabils náðist pólitísk samstaða um stofnun samráðsvettvangs um aukna hagsæld. Sá vettvangur hefur starfað áfram á kjörtímabilinu og mun væntanlega gera það áfram enn um sinn. Samráðsvettvangurinn með þátttöku stjórnmálaflokka, aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og fyrirtækjastjórnenda er til þess ætlaður að stuðla að málefnalegri umræðu um leiðir til að tryggja hagsæld Íslendinga til lengri tíma litið. Sú hugmyndavinna fer fyrst og fremst fram á fundum þessa hóps, innan vettvangsins, þar sem fulltrúar ólíkra aðila geta opinskátt og óhikað rætt kosti og galla hinna ýmsu leiða sem leitt gætu til aukinnar hagsældar. Samráðsvettvangnum er hins vegar ekki falið neitt opinbert vald og gefur ekki út framtíðarstefnumörkun fyrir Ísland með líkum hætti og Íslandi 2020 var ætlað að gera. Verkefnið virtist auk þess byggt á verkefninu Evrópa 2020 og nú þegar horfið hefur verið frá áformum um að ganga í Evrópusambandið er engin þörf á að aðlaga sig að þessum þætti í starfsemi sambandsins. Auk þess hafa þær leiðir sem núverandi ríkisstjórn hefur farið við að ná mörgum þeirra góðu markmiða sem þarna er lýst gefið ljómandi góða raun og því ekki annað hægt en að gleðjast yfir því að sú nýja nálgun hafi verið tekin upp.