145. löggjafarþing — 83. fundur,  1. mars 2016.

fullnusta refsinga.

332. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Unnur Brá Konráðsdóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við hv. þingmaður séum sammála um mjög margt.

Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi innheimtuna og það er mín persónulega skoðun að við getum gengið lengra og stigið þetta skref. En það verður auðvitað að vera unnið á réttan hátt og einhvers konar meiri hluti verður að vera fyrir því að gera það og ráðast í þær miklu breytingar. Ég veit að það eru ekki allir sammála mér þannig að nú tala ég bara fyrir mína hönd en ekki fyrir hönd nefndarinnar.

En varðandi meðferðaráætlanirnar þá kom það fram hjá þeim starfsmönnum sem sinna þessum störfum að ekki sé þarft að leggja fram slíka áætlun þegar um mjög stutta afplánun er að ræða. Það er rétt að það kemur ekki fram í frumvarpinu eða í greinargerðinni með frumvarpinu við hvaða viðmið er átt, en við tökum dæmi í áliti okkar, sem er líka lögskýringargagn, um hvað verið er að tala, hvað við teljum að þar sé átt við. Við treystum Fangelsismálastofnun til að meta það hverju sinni. Stofnuninni er treyst fyrir ýmsum ákvörðunum hér samkvæmt frumvarpinu og þetta mál er eitt af því.

En vissulega væri gott að sjá meira fjármagn inn í þennan málaflokk og ég held að það leynist engum. En það er líka hægt að nota fjármunina betur með því að nýta þau úrræði sem við þekkjum, þ.e. rafræna eftirlitið og samfélagsþjónustuna enn meira en við gerum í dag. Það er framtíðin. Það er sú framtíð sem ég vonast til að allir þeir sem hlýða hér á sjái að það er það sem allsherjarnefnd, og ég leyfi mér að segja bæði meiri hluti og minni hluti, fjallar um í áliti sínu, þ.e. að nýta þau úrræði í auknum mæli, vegna þess að í því er fólgin meiri betrun og það er hagkvæmari og skilvirkari leið til þess að fullnusta refsingar.