fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég ætla að þakka hv. málshefjanda, ég tek undir það að þetta mál er afar mikilvægt. Við höfum verið að fjalla um mál þessu tengd, sem snúa að ýmsu í kerfinu sem betur má fara. Ég og hv. þingmaður, sem hér var að ljúka ræðu sinni, stöndum saman að einu slíku sem að snýr að tæknifrjóvgunarmálum og ósanngirni í kerfinu þar.
Ég velti því fyrir mér þegar maður er að hugsa um svona missi; búið að byggja upp vonir og væntingar mislengi. Öll fjölskyldan komin í ákveðnar stellingar, ekki bara litla fjölskyldan heldur stóra fjölskyldan, fólk farið að bíða. Og svo gerist þetta. Það er kannski ekki fyrr en einhver sem lent hefur í slíkum aðstæðum bendir manni á það að maður áttar sig á því hvar kerfið er brotið. Þess vegna er mjög gott að geta brugðist við og ég treysti því að frumvarpið verði samþykkt.
Nú veit ég ekki hvað þetta kemur til með að kosta ríkissjóð. Það kemur hvergi fram, held ég. Ég er svo sem ekki búin að lúslesa þetta. Jú, þetta kemur hér, svona er þetta. Fæðingarorlofssjóðurinn, sem er reyndar búið að skerða — við þurfum þá að efla hann enn frekar. Kostnaðaraukinn yrði vissulega töluverður, en ég held að í raun sé ekki hægt að verðmerkja, ef maður getur orðað það sem svo, þær aðstæður sem hér er um að ræða.
Haldið var málþing árið 2013 um þessi mál. Að vísu höfðu framsögumenn ekki upplifað slíkt áfall, heldur var um að ræða fagaðila. Það er líka gríðarlegt álag fyrir það fagfólk sem stendur við hlið fólks sem missir barnið sitt í fæðingu. Það er að mjög mörgu að hyggja þegar kemur að þessu máli.
Dagurinn 15. október hefur verið tileinkaður missi á meðgöngu og hans hefur verið minnst með kertafleytingum. Mig langar að vitna í orð fyrrverandi velferðarráðherra, Guðbjarts heitins Hannessonar, en hann flutti ávarp við fjölmenna athöfn í Hallgrímskirkju í tilefni af þessum degi. Hann skrifaði reyndar líka pistil í Fréttablaðið þar sem hann talaði um að engin orð væru til til að lýsa slíkum missi, foreldrum sem misstu börn. Hann sagði:
„Þó eigum við orð sem lýsa börnum án foreldra, mökum án maka en ekkert orð yfir það að vera foreldri sem misst hefur barn.“
Þetta endurspeglar enn frekar tómleikatilfinninguna og einmanaleikann sem samfélagið nær ekki utan um í orðum. Við tölum um ekkjur eða ekkla en ekkert orð nær utan um þennan missi.
Það hefur reyndar mjög margt batnað, þegar kemur að þessum málum. Í ferlinu og í kerfinu hefur mjög margt verið unnið til góðs. Árið 2002 voru samtökin Litlir englar stofnuð, það er samfélag fyrir fólk sem hefur lent í sorg af þessu tagi. Svo eru það auðvitað Draumabörn og fleiri sem starfa sem stuðningshópar fyrir fólk sem verður fyrir þessari reynslu.
Allt ber að sama brunni. Þú getur fengið alls konar upplýsingar um hið formlega ferli, en ekkert um það hvað gerist, um líkamleg viðbrögð eða sorgarferlið. Hvergi er skrifað neitt um það, af því að hér á árum áður voru slíkir hlutir ekkert ræddir frekar.
Ég held því að mikið vatn hafi runnið til sjávar og mjög margt gott gerst, meðal annars með stofnun þeirra félaga sem hér hafa verið nefnd. Sem betur fer eru alltaf einhverjir tilbúnir til að opinbera hlutina, segja okkur hinum frá erfiðum tímum í lífi sínu. Það verður til þess að hlutirnir fara að hreyfast og eitthvað fer af stað. Ég held að það sé kannski það sem við þurfum að reyna að ná utan um og styðja við, en ekki bara þennan fjárhagslega ramma. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir þessu og það er auðvitað vegna þess að þetta er ekki í manns reynsluheimi.
Svo eru það fjölburafæðingarnar. Að missa annað barnið af tveimur í fæðingu þýðir minni fjárhagslegan stuðning, en áfallið er engu að síður til staðar. Fólk er búið að búa sig undir fjölburafæðingu og svo reynist það ekki verða. Það er áfall, sorgin og allt það sem fólk gengur í gegnum. Þannig að ég er mjög ánægð með að nefndin leggi til þessa breytingu hér.
Ég hef mestar áhyggjur af því að ríkissjóður verði ekki við þessu, en ég vona það þó. Ég sé að varaformaður fjárlaganefndar undirritar þetta og ég vona að hann sé meðvitaður um að þetta þýðir kostnaðarauka sem við verðum þá að mæta af því að það er jú tilhneigingin að spyrna við fótum þegar hlutirnir kosta eitthvað. En þetta er gríðarleg réttarfarsbót og sanngirni ef maður hugsar bara um það þannig. Fyrirkomulagið er svo gríðarlega ósanngjarnt eins og það er í dag. Þannig að ég trúi ekki öðru en því, þó að margt sé nú ósanngjarnt í lífinu og tilverunni og á mörgum sviðum, að ríkisstjórnin styðji málið þegar það kemur til endanlegrar atkvæðagreiðslu.
Ég er mjög ánægð með að þetta skuli vera komið fram og þær umsagnir sem hér eru. Athugasemd kom fram frá Miðstöð foreldra og barna og þar er verið að tala um jafnræði og greinarmuninum sem gerður er, með leyfi forseta:
„Þannig er kveðið á um í 4. mgr. 8. gr. laganna að foreldri öðlist rétt til fæðingarorlofs í allt að níu mánuði ef hitt foreldrið andast á meðgöngu barns og barnið fæðist lifandi. Er hér á ferðinni sjálfstæður réttur foreldris til níu mánaða fæðingarorlofs undir þessum tilteknu kringumstæðum, þ.e. að hitt foreldrið andast á meðgöngu og barnið fæðist lifandi. Samkvæmt orðanna hljóðan nær umrætt ákvæði ekki til þeirrar aðstöðu þegar foreldri andast eftir fæðingu barns.“
Ég skil það þá þannig að við séum ekki að taka á þessu í frumvarpinu. Þetta þýðir þá að rétturinn lengist ekki, ef ég skil þessa athugasemd rétt; að réttur þess foreldris sem lifir lengist ekki um þann tíma sem hitt foreldrið hefði fengið.
Nú veit ég ekkert hvaða umræða fór fram í nefndinni um þetta eða hvort þetta á ekki heima hér. Þetta tengist auðvitað. Það er verið að tala um fæðingarorlofsrétt foreldra í frumvarpinu. Ég veit ekki rökin fyrir því að nefndin ákvað að taka þessa athugasemd ekki með en mér finnst hún alla vega athyglisverð og þetta er líka eitt af því sem maður veltir ekki fyrir sér af því að þetta er ekki í reynsluheiminum.
Ég fæ kannski svör hér á eftir frá þeim sem að málinu standa. Þetta vakti athygli mína, þegar ég fór að lesa umsagnirnar um þetta mál. Mér finnst gríðarleg ósanngirni í þessu falin. Ef þú stendur uppi einn, þ.e. eitt foreldri í stað tveggja — við erum að rýmka rétt þeirra sem missa barnið sitt en ekki rétt barns sem fæðist lifandi en missir annað foreldrið. Það gerir því foreldri sem eftir lifir ekki kleift að vera jafn lengi heima og ef foreldrarnir hefðu getað skipt orlofinu með sér. Þessu er vert að velta fyrir sér og skoða áfram, en ég ætla að láta þetta duga. Mér finnst frumvarpið sem sagt allrar virðingar vert og vona að það nái fram að ganga.