145. löggjafarþing — 84. fundur,  2. mars 2016.

aðgengismál fatlaðs fólks.

[15:08]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég tel jákvætt að alls konar fólk hafi möguleika á því að búa einhvers staðar, að fólk hafi möguleika á því að lifa sjálfstæðu lífi, að geta flutt heiman frá sér og eignast sínar eigin íbúðir, að fólk hafi möguleika á að tryggja sér heimili óháð því hverjar tekjurnar eru.

Það kemur til dæmis mjög skýrt fram í þeim gögnum sem fylgja með frumvarpinu um almennar íbúðar, þar sem við erum meðal annars að reikna út kostnaðinn fyrir fólk sem er á örorkubótum, hvernig við getum tryggt að húsnæðiskostnaður þess verði ekki meiri en 20–25% af tekjunum.

Ég held hins vegar að það sé líka mjög mikilvægt að við búum ekki til þröskuldana í gegnum þær kröfur sem við setjum sem stjórnvöld heldur reynum einmitt að koma þeim í burtu þannig að allir hafi aðgengi að húsnæði. Til þess eru fjölmargar leiðir og ég tel því miður að (Forseti hringir.) mjög margt af því sem hefur verið gert varðandi breytingar á skipulagsmálum, ekki þó varðandi möguleika fatlaðs fólks heldur mjög margt þar, hafi búið til fjölmarga þröskulda fyrir fólk þegar kemur að aðgengi að húsnæði, ekki hvað síst efnaminna fólk. (Gripið fram í.)