orð þingmanns um hælisleitendur.
Virðulegi forseti. Ég er mikill stuðningsmaður EES-samningsins. Ég tel að Schengen hafi nýst okkur mjög vel og er ekki þeirrar skoðunar að við eigum að ganga úr Schengen eða íhuga það. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að við gerum okkar sem fullvalda þjóð til þess að hjálpa, öxlum ábyrgð, tökum á móti flóttamönnum í samræmi við alþjóðlegu skyldur okkar og gerum það eins vel og við mögulega getum. Ég tel ekki ástæðu til að við tökum sérstaklega upp vegabréfaeftirlit með sambærilegum hætti og til dæmis Svíar eða Danir hafa gert, enda held ég að nýlega hafi komið fram hvatning um að þau lönd sem eru aðilar að Evrópusambandinu eða EES-svæðinu íhugi hvort rétt sé að hætta því.
Ég tel að það sé líka mikilvægt að við reynum að bæta úr því annars vegar hvernig við tökum á móti kvótaflóttamönnum og hins vegar þeim sem fá dvalarleyfi hér eftir að hafa sótt um, verið hælisleitendur. Við höfum verið að fara yfir það í ráðuneytinu hvernig við getum bætt úr því með því að styðja Rauða krossinn enn frekar, eins og við höfum verið að gera með því að sinna því verkefni, og eins að styðja sveitarfélögin, sem eru þeir aðilar sem bera meginþungann af því að sinna þessum einstaklingum eins vel og hægt er.