145. löggjafarþing — 84. fundur,  2. mars 2016.

fullnusta refsinga.

332. mál
[16:47]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Um er að ræða tillögur að tveimur breytingum; annars vegar þeirri að þóknanir fyrir vinnu og nám þróist í samræmi við verðlag, en fangar hafa kvartað undan því að lítið sem ekkert hafi breyst frá árinu 2008 og á meðan hafi verðlag rokið upp. Minni hlutinn leggur til lagfæringu á því þannig að þóknunin miðist við verðlagsþróun.

Hins vegar leggur minni hlutinn til að talsmenn fanga verði undanþegnir reglusetningum um samskipti við fjölmiðla enda er mikilvægt að þeir geti átt samskipti hindrunarlaust. Það er enn fremur í samræmi við þá fyrri tillögu um að talsmenn fanga geti verið utan fangelsa.