Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og skýringu á fyrirvara. Að sjálfsögðu mun nefndin taka málið aftur til sín og fjalla um það hvort hægt sé að setja félaginu einhvers konar endanlegan starfstíma. Í frumvarpinu stendur að félaginu skuli slitið þegar það hefur lokið störfum sínum sem er vissulega óljóst og ég velti því einmitt upp í minni ræðu hvað það þýði að störfum sé lokið. Þarna eru gríðarlega miklir hagsmunir ef eignasafnið sem félagið þarf að sinna er upp á 60–70 milljarða. 1% af þeirri tölu er 600 milljónir og ef félaginu tekst að auka árangur við eignasöluna um 1% er það mikill fengur fyrir ríkið. Það hvort það starfar einu ári lengur eða skemur finnst mér nokkurt aukaatriði í þessu og kannski ekki stóra málið. Stóra málið er að þetta verði vel gert með gagnsæjum hætti og enginn asi á því.
Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að þetta geti valdið einhverjum flýti sem gæti skaðað hagsmuni ríkisins? Er ekki bara betra að segja að þetta sé búið þegar það er búið? Það getur eitthvað komið upp. Þetta eru kallaðar fjársópseignir, fjársópsákvæði, sem getur þurft að innheimta strax að loknum tíma. Ég spyr: Hvað þarf eignatalan að vera orðin lág til að hv. þingmaður telji tímabært að fyrirtækið ljúki störfum? Hvað yrði þá um þær eignir sem eftir stæðu?