145. löggjafarþing — 85. fundur,  9. mars 2016.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:11]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Með bréfum, dagsettum 1. og 8. mars sl., hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna og skýrslu Ríkisendurskoðunar um reiknilíkan heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.