þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég get alveg tekið undir meginþemað í málinu, að reyna kannski að aðgreina eitthvað frekar áhrifamátt ráðherra á þingmenn. En ég hef ákveðnar efasemdir í þessu litla samfélagi okkar þrátt fyrir að þeir sitji ekki þingflokksfundi og þetta með að verða samdauna einhverju eða ráðherra fái sviðið inni á þingflokksfundi til að kynna mál sín og afla þeim fylgis. Nú vitum við að þingmenn kynna sér málin misjafnlega í dag hvar sem þeir standa í flokki og hafa gert í gegnum tíðina. Ég sé ekki að þeir kynni sér þau eitthvað frekar með öðrum hætti. Ég held að það sé bara einstaklingsbundið. En mig langar í þessu samhengi að spyrja: Nú er töluvert um það að þingmenn vinni fyrir ráðherra alls konar vinnu, við þekkjum það. Það eru nefndir og ýmislegt í gangi sem styðja kannski við þessi (Forseti hringir.) tengsl. Telur þingmaðurinn að það muni líka breytast eitthvað?