spilahallir.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um spilahallir. Margir kannast betur við orðið spilavíti en þetta mál er á þskj. 51, mál nr. 51. Málið var fyrst lagt fram á 143. löggjafarþingi, var þá nr. 501. Ekki náðist að mæla fyrir því þá og fékk það því ekki efnislega meðferð það skiptið. Þá var málið lagt fram óbreytt öðru sinni á þskj. 156, mál nr. 153 og enn náðist ekki að mæla fyrir því. Frumvarpið er því lagt fram í þriðja sinn óbreytt. Meðflutningsmenn mínir á frumvarpinu eru eftirfarandi hv. þingmenn: Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Haraldur Einarsson, Páll Jóhann Pálsson, Ásmundur Einar Daðason, Brynjar Níelsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Steingrímsson, Páll Valur Björnsson og Brynhildur Pétursdóttir.
Með frumvarpinu er lagt til að heimila rekstur spilahallar á grundvelli leyfisveitingar ráðherra; að starfsemin fari fram undir opinberu eftirliti, að henni verði sett almenn lagaumgjörð þannig að stuðlað verði að ábyrgri spilamennsku og hamlað gegn mögulegum skaðlegum áhrifum af slíkri starfsemi.
Ég ætla fyrst að gera grein fyrir ástæðu og tilurð frumvarpsins. Á Íslandi hefur nokkur umræða farið fram á undanförnum árum um hvort rétt sé að lögleiða heimild til reksturs spilahalla, en samkvæmt 183. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, er slíkur rekstur refsiverður, þ.e. að framfleyta sér með fjárhættuspili. Þá er jafnframt refsivert, samkvæmt 184. gr. sömu laga, að stunda fjárhættuspil og veðmál í atvinnuskyni og koma öðrum til þátttöku í þeim, eins og það er orðað, svo og að hafa beinar eða óbeinar tekjur af því að láta það fara fram í húsakynnum sínum.
Staðreyndin er sú að þrátt fyrir þessi ákvæði hegningarlaga eru ýmis fjárhættuspil heimiluð á grundvelli sérlaga. Má þar nefna happdrætti, lottó, getraunir og starfsemi spila- og söfnunarkassa. Hér má því segja að ákveðinnar þversagnar gæti í lögunum. Því eru fyrir hendi margvíslegir möguleikar fyrir almenning að stunda fjárhættuspil sem eru heimil samkvæmt núgildandi löggjöf. Auk þess hefur þróunin því miður orðið sú að starfræktir eru spilaklúbbar sem bjóða almenningi að stunda fjárhættuspil sem eru óheimil samkvæmt lögunum en þrífast utan laga og réttar án alls eftirlits, án réttarverndar þeirra sem spila. Eftirlitið er því ekkert og engar tekjur af þessari starfsemi, engar skatttekjur sem runnið gætu í ríkissjóð.
Því er um að ræða starfsemi sem þrífst í eins konar svartholi. Í slíku umhverfi er hætt við að upplifun okkar sé sú að fjárhættuspil tíðkist ekki á Íslandi. Það virðist þó ekki vera svo, og vitna ég í því sambandi í blaðagrein DV frá síðasta ári, virðulegi forseti, þar sem greint er frá starfsemi pókerklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Má vera að þeir sneiði hjá 183. og 184. gr. hegningarlaga en það er ekkert lögbundið eftirlit, engar skatttekjur og engin réttarvernd, eins og ég kom inn á, þeirra sem spila. Afleiðingin af því að setja ekki lög í þessu tilviki, þar sem skýrt er kveðið á um starfsemina, er nákvæmlega sú sem ég taldi upp.
Í þessari blaðagrein segir meðal annars þessu tengt, með leyfi forseta:
„Spilaklúbbar hafa verið starfræktir um nokkurt skeið og virðast fá að starfa nokkuð óáreittir, enda halda eigendur því fram að þriðji aðili hagnist á engan hátt af starfseminni.“
Þess utan féll dómur í ákæru í slíku máli í nóvember á síðasta ári þar sem ákærðu voru dæmdir fyrir rekstur á slíkum stað á grundvelli hegningarlaga.
Fyrir utan þá starfsemi sem ég hef hér rætt hefur spilamennska á netinu snaraukist og möguleikar til þátttöku í ýmiss konar fjárhættuspilum þannig margfaldast. Til marks um þá þróun má sjá auglýsingar í fjölmiðlum þar sem auglýstar eru vefsíður sem alla jafna eru vistaðar utan Íslands og eiga íslensk stjórnvöld þar af leiðandi litla sem enga möguleika á því að hafa eftirlit með þeim eða setja um þær reglur. Þessu til áréttingar má benda á dóm Hæstaréttar nr. 577/2008, sem snýr að auglýsingum á vefsíðunni Betsson. Nægir þar að rekja hluta úr dómsniðurstöðu þar sem segir, með leyfi forseta:
„Liggur ekkert annað fyrir í málinu en að umrædd vefsíða sé hýst erlendis og að sú starfsemi sem hún kynnir fari að öllu leyti fram utan íslenskrar lögsögu. Þar sem ekkert er fram komið um að með umræddum auglýsingum sé verið að kynna happdrættis- eða veðmálastarfsemi sem rekin er hérlendis án tilskilins leyfis, verður þegar af þeirri ástæðu að sýkna ákærða af ákæru í þessu máli.“
Liggur ekki annað fyrir í málinu en að umrædd vefsíða sé hýst erlendis og að sú starfsemi sem hún kynnir fari að öllu leyti fram utan íslenskrar lögsögu. Þar sem ekkert er komið fram um að með umræddum auglýsingum sé verið að kynna happdrættis- eða veðmálastarfsemi sem rekin er hérlendis án tilskilins leyfis verður þegar af þeirri ástæðu að sýkna ákærða af ákæru í þessu máli.“
Virðulegi forseti. Það frumvarp sem ég mæli fyrir og verið er að leggja fram hér leysir ekki allan vanda. En að hluta til dregur þetta mál fram þá staðreynd að oft er það engin lausn að banna hluti og trúa þar með að þeir fari ekki fram eins og í tilfelli þeirrar starfsemi sem hér þrífst nú þegar eða þeirra mála sem hafa ratað fyrir dómstóla.
Það sem þó má gefa sér, þegar við drögum þetta upp á yfirborðið og setjum slíkri starfsemi lög eða rammalög, er að það vill gjarnan verða til þess að ekkert eftirlit er mögulegt, engar tekjur eru skráðar og engar tekjur sitja eftir í ríkissjóði, þ.e. þegar þetta fær að þrífast utan laga og reglna.
Það er því í mínum huga andi þessa frumvarps að horfast í augu við staðreyndir og gera það skynsamlega í stöðunni að ná utan um starfsemi af þessu tagi og setja lög sem miða að hinum almenna neytanda en veita um leið aðhald, eftirlit og enn fremur stuðning við þá sem ekki kunna fótum sínum forráð í þessum efnum. Þess utan er þetta ferðaþjónustutengt mál og vinsæl afþreying, bæði tengt borgarferðaþjónustu og ráðstefnuhaldi.
Ég ætla að fara yfir markmið og innihald lagagreina frumvarpsins og meginefni þess. Markmið frumvarpsins er að setja almenna lagaumgjörð um rekstur spilahalla á Íslandi. Með frumvarpinu er þannig lagt til að ákveðin leyfisskyld starfsemi spilahalla á Íslandi verði heimiluð og er það nýmæli í lögum. Enn fremur er það markmið laganna að öll slík starfsemi fari fram undir opinberu eftirliti. Þannig er gengið út frá því að lögin nái yfir starfsemi spilahallar sem rekin er í atvinnuskyni og á grundvelli leyfisveitingar ráðherra.
Vegna eðlis þessarar starfsemi er rík áhersla lögð á að gera skilmerkilega grein fyrir inntaki leyfisveitingar, skilyrðum fyrir veitingu leyfis og skyldum þeim sem settar eru á leyfishafa og eftirlit þar að lútandi.
Efni frumvarpsins er skipt upp í tólf kafla. Í I. kafla þess er að finna ákvæði um markmið laganna og gildissvið, helstu orðskýringar eða skilgreiningar á helstu hugtökum laganna. Þar eru skilgreind hugtök sem eru okkur framandi að einhverju marki og má þar nefna hugtök eins og spilahöll en eins og ég sagði þá kannski þekkjum við frekar orðið spilavíti, virkur eignarhlutur sem þó er ekki framandi fyrir þá sem starfa á markaði fjármála, húsbaukur, spilakassar og spilapeningar.
Í II. kafla frumvarpsins er fjallað um rekstrarleyfið og veitingu þess. II. kafli hefur að geyma 4.–13. gr. og er í fyrri hluta kaflans fjallað um leyfisveitinguna; hver veitir slíkt leyfi, hvaða starfsemi flokkast undir slíkt leyfi eða telst leyfisskyld starfsemi, hvernig skal standa að umsókn um slíkt leyfi og hvaða skilyrði umsækjandi þarf að uppfylla fyrir slíkri leyfisveitingu.
Þá er sérstaklega kveðið á um þann tíma sem ráðherra hefur til að tilkynna umsækjanda ákvörðun um leyfisveitingu og jafnframt um synjun ef umsókn fullnægir ekki settum skilyrðum. Þá er einnig að finna ákvæði sem snýr að skyldum væntanlegs leyfishafa um tilkynningaskyldu er varðar breytingar á starfseminni og svo hvernig staðið skuli að umsóknum um endurnýjun rekstrarleyfis.
Í síðari hluta II. kafla er svo fjallað um afturköllun rekstrarleyfis og leitast við að kveða skýrt á um þau tilfelli og tilefni sem kalla á slíka afturköllun, hvenær slíkt sé heimilt og hvernig skuli standa að því að tilkynna slíka afturköllun.
Í III. kafla má finna 14., 15. og 16. gr. þar sem fjallað er um spilakassa, notkun og reglur sem snúa að kröfum um öryggi, vinninga, útborgun vinninga, tölvukerfi og eftirlit. Þá er fjallað um spilareglur þeirra spila sem í boði eru og framkvæmd spila, þann aðbúnað og þjónustu sem talin er við hæfi. Í 16. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ráðherra setji nánari reglur um framkvæmd spila, þar með talið um spilafjárhæðir og nauðsynlegar takmarkanir þar að lútandi.
Í IV. kafla er að finna 17., 18., 19. og 20. gr. þar sem nánari ákvæði eru um spilapeninga sem nota skal í spilahöll og meðferð þeirra, um skiptingu reiðufjár í peninga og útgreiðslu vinninga. Stór hluti af því að stuðla að ábyrgri spilamennsku eru strangar kröfur um meðferð spilapeninga, en ekkert síður um aðgengi og umgengni almennt.
Í V. kafla frumvarpsins, í 21., 22. og 23. gr., er að finna ákvæði þess efnis, um aðgangskröfur, en einstaklingum undir 21 árs aldri er óheimill aðgangur að spilahöllum. Margir kynnu að spyrja af hverju slíkt aldurstakmark er til staðar en hér er einfaldlega verið að fylgja upphaflegu fordæmi danskra yfirvalda sem fóru þessa leið 1990 og löggjafar sem kvað á um það. Í þessum kafla er einnig kveðið á um skyldur gagnvart öryggisgæslu í spilahöll, heimildir til innheimtu aðgangseyris og um opnunartíma.
VI. kaflinn hefur að geyma 24.–28. gr. og snýr að umgengni og samskiptum við viðskiptavini. Þar er að finna ákvæði um skráningu viðskiptavina. En í 24. gr., sem ég vil draga hér fram, segir að leyfishafa sé skylt að skrá upplýsingar um sérhvern viðskiptavin og honum sé skylt að framvísa gildum persónuskilríkjum. Í kaflanum er að finna ákvæði um skyldu til geymslu upplýsinga í tiltekinn tíma og eyðingu að þeim loknum.
Þá er í kaflanum að finna ákvæði um heimild viðskiptamanna til að setja sjálfan sig á bannlista hjá spilahöll þannig að viðkomandi sé meinaður aðgangur að spilahöllinni. Ég vil taka fram um þetta atriði að þetta hefur gefist mjög vel þar sem þess konar starfsemi er leyfð. Þá tel ég mjög mikilvægan lið að þessu leyti að stuðla að ábyrgri spilamennsku og leið sem getur nýst þeim sem eiga mögulega í vanda. Hafi viðskiptavinur þannig óskað eftir slíkri skráningu er starfsmanni leyfishafa, sem tekur á móti beiðninni, skylt að upplýsa viðkomandi um ráðgjöf og meðferðarúrræði við spilafíkn. Um leið er mikilvægt að leggja áherslu á að starfsfólk fái þjálfun og fræðslu við hæfi til að sinna hlutverki sínu.
Þá er í VI. kafla að finna heimild til þess að skrá upplýsingar um refsivert athæfi viðskiptamanna að tilteknum skilyrðum uppfylltum sem og um skyldur til að varðveita gögn um framkvæmd viðskipta í spilahöll.
Í VII. kafla, í 29., 30., 31. og 32. gr., er að finna ákvæði sem snúa að starfsfólki spilahalla, meðal annars um skilyrði fyrir ráðningu og bann við spilamennsku starfsmanna. Þá er í kaflanum hnykkt á þeirri ábyrgð og skyldu leyfishafa, nánar til tekið í 31. gr., og starfsmanna hans, að komi upp grunur um spilafíkn hjá viðskiptavini þá sé honum kynnt sú ráðgjöf og þau meðferðarúrræði sem standa spilafíklum til boða og völ er á.
Í athugasemdum við einstakar greinar segir að æskilegt sé að leyfishafi hafi samráð við félagasamtök sem bjóða meðferð við spilafíkn um hvernig best er að aðhafast í tilvikum sem þeim. Þá er í 2. mgr. lögfest sú skylda leyfishafa að setja sér reglur um hvernig bregðast skuli við í slíkum aðstæðum.
Í lokaákvæði VII. kafla er svo kveðið á um heimild leyfishafa til að hafa húsbauk í spilahöll og hvernig skuli fara með framlög sem safnast í slíkan bauk en ráðherra gert að setja nánari reglur um slíkan sjóð, uppgjör, eftirlit og bókhald.
Í VIII. kafla, í 33.–37. gr., er fjallað um ársuppgjör og endurskoðun og vísað í fyrirliggjandi lög um ársreikninga og endurskoðun þar sem það á við og reglur um góða reikningsskilavenju.
Í IX. kafla, í 38.–41. gr., er að finna ákvæði um eftirlit með spilahöll en samkvæmt frumvarpinu mun hæstv. innanríkisráðherra hafa slíkt eftirlit með höndum. Í 2. mgr. 38. gr. er kveðið á um víðtækar heimildir ráðherra til gagna- og upplýsingaöflunar sem og heimild til að framkvæma rannsókn í spilahöll þegar hann telur þörf á.
Á bls. 36 í frumvarpinu er nánar fjallað um 38. gr. frumvarpsins og mér finnst rétt að vekja athygli á en þar segir, með leyfi forseta:
„Í ljósi þess að sú starfsemi sem lög þessi taka til hefur fram til þessa verið óheimil hér á landi er ekki fyrir hendi stjórnvald sem hefur eftirlit með þessum málaflokki. Þegar sambærileg lög voru upphaflega sett í Danmörku var sama staða uppi þar og eftirlit með lögunum falið ráðherra þar í landi. Eftir nokkra reynslu af starfsemi á þessu sviði var farin sú leið að útbúa nýja heildarlöggjöf sem tekur til reksturs spilahalla, lottós, happdrættis og annarra sambærilegra spila og leikja og samhliða var sett á laggirnar nýtt stjórnvald sem hefur eftirlit með allri starfsemi á grundvelli laganna.“
Virðulegi forseti. Við þekkjum þessa umræðu. Komi til endurskoðunar laga þessara og verði reynsla Íslendinga sambærileg reynslu Dana er rétt að hafa í huga hvort ekki sé rétt að taka til skoðunar hvort tilefni sé til að útbúa heildarlöggjöf um hvers konar fjárhættuspil hér á landi með samhliða stofnun nýs eftirlitsstjórnvalds. Það er mín skoðun, virðulegi forseti, að ef þetta lagafrumvarp nær fram að ganga þá sé fullt tilefni til, en tíminn verður að leiða það í ljós. Í ljósi þeirrar hröðu þróunar sem hefur orðið í alls kyns spila- og veðmálastarfsemi á netinu þá er rétt að endurskoða í heild sinni lagaumgjörð um þessi mál.
Það er sorglegt að líklega siglir stór hluti af þessari starfsemi undir radar, ef við getum orðað það sem svo, þær veðmálasíður sem allir geta heimsótt á netinu, án þess að nokkrar tekjur renni af því í ríkissjóð. Ekki er heldur nokkur einasti möguleiki á að hafa með þessu nokkurt eftirlit eða átta sig á umfanginu.
Ég get vitnað í rannsóknir sem Daníel Ólafsson hjá Háskóla Íslands hefur gert á þessu, með ýmsum spurningum. Þar kemur fram að algengi spilamennsku hefur aukist gríðarlega á árunum 2005–2011 sem hann hefur kannað þetta á.
Um eftirlit hæstv. ráðherra segir enn fremur að hann hafi heimild til að fá aðgang að öllum gögnum og upplýsingum frá leyfishafa sem hann telur nauðsynlegt til að sinna því og krefja viðkomandi leyfishafa um þann kostnað sem hlýst af því, meðal annars vegna þátttöku sérfróðra aðila til að fylgja eftir og hafa umsjón með slíku eftirliti. Þá er gert ráð fyrir að ávallt sé til staðar á opnunartíma spilahallar óháður bókhaldsfróður eftirlitsmaður sem lýtur stjórn ráðherra en ekki stjórnendum spilahallar.
Jafnframt er í kaflanum að finna ákvæði er tekur til gruns um peningaþvætti og um skyldur til að viðhafa rafræna vöktun með myndavélum í spilahöll.
Í X. kafla, 42. gr., er að finna ákvæði um refsingu við broti á lögum þessum. En þar er tilgreint að það varði sektum liggi þyngri refsing ekki við broti samkvæmt öðrum lögum.
Í XI. kafla er að finna 43.–49. gr. og er þar fjallað um skattlagningu þeirra tekna sem myndast af rekstri spilahallar og ráðstöfun þeirra. Í 43. gr. er kveðið á um skattskyldu þeirra aðila sem starfa á grundvelli laganna. Í 44. gr. er svo kveðið á um sérstakan spilaskatt og hvernig stofn til útreiknings á spilaskatti er fenginn og afmarkaður. Skattlagningin er há og það er sú sama leið og hefur verið farin í nágrannalöndum okkar og í Danmörku eða allt að 80% spilaskattur.
Ástæða er til að greina sérstaklega frá 45. gr. þar sem segir að ráðherra skuli stofna sjóð sem hafi það hlutverk að stuðla að rannsóknum og eflingu meðferðarúrræða sem miða að því að sporna við spilafíkn og afleiðingum hennar. En 3% af öllum spilaskatti sem innheimtur er á grundvelli laga þessara skal renna til sjóðsins.
Í XII. kafla er að finna 50., 51. og 52. gr. Þar eru ýmis ákvæði er snúa að reglugerðarheimild ráðherra og meðal annars er heimilt að mæla nánar fyrir um framkvæmd skattlagningar á grundvelli laga í reglugerð og um gildistöku. Þá er í 52. gr. fjallað um breytingu á öðrum lögum.
Að lokum eru í frumvarpinu ákvæði til bráðabirgða þar sem gert er ráð fyrir að ef frumvarpið verði að lögum verði þau lög endurskoðuð innan sjö ára frá gildistöku. Þá er í öðru bráðabirgðaákvæði kveðið á um að ráðherra verði aðeins heimilt að gefa út eitt rekstrarleyfi á grundvelli þessara laga. Margar ástæður geta legið fyrir því að byrja eigi á einu rekstrarleyfi hér á landi, en hér er litið til þess að læra af reynslunni gagnvart grundvelli slíks reksturs og aðkomu yfirvalda gagnvart þáttum eins og eftirliti. Eðli málsins samkvæmt, eins og lagt er til í bráðabirgðaákvæði, kemur þetta til endurskoðunar samhliða þessu sjö ára endurskoðunarákvæði.
Í lok framsögu ætla ég að ræða tilgang slíkrar lagasetningar og þá hagsmuni sem eru í húfi. Frumvarpið tekur, eins og ég hef komið inn á, mið af danskri löggjöf og er í raun verið að fara sömu leið og þegar Danir fóru í gegnum þessa umræðu í lok níunda áratugarins um lögleiðingu spilahalla. Í þeirri umræðu komu fram spurningar um það hvað kæmi danskri atvinnustarfsemi vel, hverjir væru hagsmunir ríkissjóðs og hvort hægt væri að tryggja nægilegt eftirlit með starfseminni. Umræðunni lauk á þann veg að starfsemi spilahalla var leyfð með samþykkt laga þar um. Þetta gerðist á danska þinginu árið 1990.
Í umræðunni var mikið horft til ferðaþjónustunnar og hagsmuna hennar. Ýmsum spurningum var velt upp, meðal annars um það hvernig staða Kaupmannahafnar yrði best tryggð í samkeppni um ferðamenn við aðrar helstu borgir Evrópu. Einnig var því velt upp hvort lögleiðing spilahalla mundi styrkja stöðu borgarinnar. Þá var sérstaklega horft til gesta skemmtiferðaskipa og ráðstefnugesta.
Fleira kom til. Á þessum tíma voru margir ólöglegir spilasalir reknir í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku sem greiddu engin opinber gjöld og sættu ekki opinberu eftirliti. Þannig höfðu sjónarmið varðandi eftirlit verulega þýðingu í umræðunni um lögleiðingu í Danmörku en jafnframt var litið til fyrirsjáanlegs fjárhagslegs ágóða ríkissjóðs og ferðaþjónustunnar af lögleiðingu. Í samræmi við þau sjónarmið var svo sú leið farin í Danmörku að gera ríkar kröfur um eftirlit og skráningu og skylda lögð á leyfishafa að standa að umfangsmikilli skráningu gagnvart viðskiptavinum sínum til að tryggja öryggi og eftirlit. Auk þess var leyfishöfum gert að veita stjórnvöldum og eftir atvikum lögreglu greiðan aðgang að upplýsingum í því skyni að auðvelda þeim aðilum að fullnægja eftirlitshlutverki sínu. Mikil áhersla var lögð á samvinnu allra aðila sem komu að því hlutverki.
Þá var sú leið farin að skattleggja hagnað spilahalla hátt og fullyrt er að starfsemi hinna ólöglegu spilasala hafi lognast út af í framhaldi af lagasetningunni enda ekki samkeppnishæfir við löglegar spilahallir sem sæta ströngu eftirliti. En eftir að þessi eina höll var leyfð og eftir þessa reynslu Dana hafa verið opnaðar að minnsta kosti sex slíkar frá þeim tíma. Þá er ljóst að lögleiðing starfseminnar hefur skilað ríkissjóði verulegum tekjum sem ekki skiluðu sér til ríkisins fyrr, þ.e. þegar slíkur rekstur var ólöglegur.
Strax í upphafi var lagt bann við aðgengi fólks undir tilteknum aldri að spilasölum og þær skilyrðislausu kröfur gerðar til gesta að sýna persónuskilríki, vegabréf eða ökuskírteini við komu í spilahöll. Þá voru lagðar kvaðir á leyfishafa um upplýsinga- og eftirlitsskyldu gagnvart spilafíklum alveg eins og gert er í þessu frumvarpi.
Ef við veltum því fyrir okkur af hverju við ættum að lögleiða starfsemi af þessum toga þá geta slíkir almannahagsmunir verið margþættir. Ég ætla helst að draga fram þrjá þætti:
Í fyrsta lagi yrði slík lögleiðing líkleg til að styðja og efla ferðaþjónustu með auknum afþreyingarmöguleikum; aukin fjölbreytni og lenging ferðamannatímabils. En eins og við þekkjum vel þá hefur orðið gríðarlegur vöxtur í greininni á undanförnum árum og sannarlega skortur á fjölbreyttri afþreyingu og þetta er til þess fallið að styrkja ráðstefnuferðaþjónustu.
Í öðru lagi mundi lögleiðingin leiða til aukinna tekna fyrir ríki og sveitarfélög og tryggja þannig nýtt innstreymi fjármagns í ríkissjóð.
Í þriðja lagi, og það er kannski það sem skiptir hvað mestu máli, væri með lögleiðingu hægt að koma slíkri starfsemi sem þegar þrífst á Íslandi, í undirheimum og á netinu, undir eftirlit, veita viðskiptavinum réttarvernd og senda skýr skilaboð um hverjir það eru sem eiga erindi til að stunda slík fjárhættuspil. Þessi atriði fela ekki aðeins í sér hvata fyrir lagasetningu heldur marka þau að nokkru tilgang lagasetningarinnar.
Efnahagslegur ávinningur af lögleiðingu reksturs leyfisskyldra spilahalla er ekki aðeins bundinn við atvinnusköpun á vegum leyfishafa eða áhrif á ferðaþjónustu því að hann felst ekki hvað síst í því að hagnað af löglegri leyfisskyldri starfsemi er hægt að skattleggja.
Markaður fyrir fjárhættuspil á netinu fer að líkindum vaxandi og íslenska ríkið verður af verulegum tekjum með því að skattleggja ekki þá starfsemi sem þegar er til staðar. Færi ríkið þá leið að lögleiða slíka starfsemi, sem er ekki til umræðu hér, þ.e. þá starfsemi sem fer fram á netinu, væri hægt að tryggja enn frekar innstreymi fjármuna til ríkissjóðs og bæta um betur og ná betur utan um, að því er fram kemur í íslenskum rannsóknum, vaxandi algengi, vanda á því sviði, og aukna þátttöku ungra karlmanna á aldrinum 18–25 ára. Þessir fjármunir gætu þá nýst í heilbrigðis- eða menntakerfið eða önnur þau samfélagslegu velferðarkerfi sem við viljum byggja upp.
Það er þó ekki efnahagslegur ávinningur sem mælir einhliða með þessari lögleiðingu. Eins og fyrr getur er það á flestra vitorði að aðgengi að slíkum fjárhættuspilum fyrir almenning hér á Íslandi er nú þegar fyrir hendi eins og ég fór hér yfir, virðulegi forseti.
Ég ætla aðeins, á þeim stutta tíma sem ég á eftir, að koma frekar að þeim almannahagsmunum sem lúta að því að auka eftirlit og koma slíkri starfsemi undir lög, en hér hefur þrifist ólögleg starfsemi utan opinbers eftirlits, það er viðurkennt. Þeir sem eiga viðskipti í slíkri starfsemi eru að mörgu leyti án réttarstöðu og eiga á hættu að verða fyrir barðinu á svikum. Þá er ljóst að kröfur á báða bóga vegna viðskipta þessara njóta ekki lögverndar, þannig geta þeir sem hafa atvinnu af því að bjóða fjárhættuspil ekki farið með kröfur sínar á hendur viðskiptavinum í löginnheimtu og að sama skapi hafa viðskiptavinir enga tryggingu fyrir því að fá vinninga sína greidda út. Með lögleiðingu leyfisskylds reksturs spilahalla væri hægt að hafa eftirlit með þeirri starfsemi sem þegar er boðin á Íslandi og veita viðskiptavinum og neytendum réttarvernd sem þeir hafa ekki á grundvelli gildandi löggjafar.
Varðandi netið er einnig rétt að líta til þess að vefsíður þær sem bjóða upp á fjárhættuspil gera viðskiptavinum sínum kleift að stunda fjárhættuspil hvar og hvenær sem er. Þá virðast litlar eða takmarkaðar aðgangskröfur vera fyrir hendi á vefsíðum sem þessum. Þannig geta börn, ungmenni og aðrir varnarlausir aðilar verið þátttakendur á slíkum vefsíðum, sem telja verður varhugavert. Yfirvöld eiga þó eðli málsins samkvæmt afar erfitt með að sinna eftirliti með slíkri starfsemi. Með lögleiðingu leyfisskylds reksturs spilahalla er samhliða lagt til að skýr ákvæði varðandi aðgangskröfur verði lögfest, til að mynda skilyrði um að viðskiptavinir spilahalla hafi náð 21 árs aldri. Slík skilyrði senda þau skilaboð út á við að fjárhættuspil séu einvörðungu hugsuð fyrir fullorðna einstaklinga sem hafa nægilegan þroska til að taka þátt í þeim. Með þessu er íslensk löggjöf einnig löguð að þeim raunveruleika sem er fyrir hendi og skýr skilaboð send um að spilamennska skuli stunduð af ábyrgð, undir eftirliti og aðeins af aðilum sem eru til þess bærir.
Virðulegi forseti. Mál þetta er á borði hæstv. innanríkisráðherra. Ég geri ráð fyrir því að það fari nú til hv. allsherjar- og menntamálanefndar í hefðbundið umsagnarferli og fái þar faglega umfjöllun.