störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er ekki nema von að okkur á Alþingi blöskri eins og mörgum öðrum í samfélaginu. Við þurfum sífellt, dag eftir dag, að horfa upp á sjálftöku víða í okkar kerfi. Eins og rakið var rétt áðan erum við mikið búin að ræða Borgunarmálið og það er alls ekki komið fyrir vind. Önnur mál gagnvart Landsbankanum virðast líka vera að koma upp á yfirborðið.
Ég verð að taka undir með þeim sem hér hafa talað um tryggingafélögin. Sjálftakan sem við höfum verið að ræða hér undanfarna daga er algjörlega óboðleg og við verðum að bregðast við. Við höfum væntanlega öll lent í því að fá til okkar rukkun fyrir tryggingarnar okkar einhvern tímann upp úr áramótunum þar sem við okkur blasti töluverð hækkun iðgjalda og skýringin var sú að léleg afkoma tryggingastarfseminnar á síðasta ári væri ástæðan. Við, viðskiptavinirnir, fáum sem sagt hækkun iðgjalda vegna lakrar afkomu en eigendurnir fá verulega aukinn arð vegna góðrar afkomu. Það hljómar ekki alveg rétt í eyrum okkar.
Ég held að stórum hluta þjóðarinnar hljóti að líða eins og hann hafi verið rændur í björtu. Tryggingafélögin láta eins og þau eigi þessa sjóði en það erum auðvitað við sem eigum þá. Þau geta ekki ráðstafað ávöxtun þeirra eða öðru slíku að fullu til sjálfra sín heldur eiga þau auðvitað fyrst og síðast að hugsa um okkur, viðskiptavini sína.
Við höfum breytt regluverkinu þannig að það má minnka tryggingasjóðina en þrátt fyrir allt erum við samt að greiða hærri iðgjöld en við ættum að þurfa að gera.
Í stað þess að endurgreiða viðskiptavinum sínum eins og við höfum dæmi um í útlöndum ákveða stjórnir tryggingafélaganna að greiða sér út arð. Meira að segja ætlar eitt tryggingafélag að taka lán að hluta til fyrir arðgreiðslunni.
Virðulegi forseti. Það er ekki boðlegt. Sjálftökuliðið (Forseti hringir.) sem rak þjóðarbúið í þrot með taumlausri græðgi sinni er komið á fullt aftur. Skömm sé því.