störf þingsins.
Virðulegi forseti. Félagsvísarnir sem velferðarráðuneytið og Hagstofa Íslands gáfu út fyrir skemmstu sýna að margt í þjóðfélagi okkar er að þróast á jákvæðan hátt. Þar má sjá að samverustundum barna og foreldra fjölgar verulega. Árið 2014 sögðust 63% barna á aldrinum 14–15 ára verja tíma sínum oft eða nær alltaf með foreldrum sínum um helgar samanborið við tæplega 37% árið 2006. Sama þróun á sér stað varðandi samveru utan skóla á virkum dögum. Margt fleira áhugavert um lífsvenjur barna má sjá í félagsvísunum, t.d. stundaði mun hærra hlutfall barna á aldrinum 14–15 ára íþróttir reglulega árið 2014 heldur en 2006, eða 39%. Börnum sem segjast reykja eina eða fleiri sígarettur á dag hefur fækkað verulega á síðustu árum. Þá er ölvun meðal barna mun fátíðari og færri börn hafa prófað hass. Í heildina finnst mér þetta frábærar niðurstöður en jafnframt segir þessi greining mér að mikilvægt sé að missa ekki sjónar á mikilvægi forvarna og því að hagsmunir barna og forvarnir séu hafðir að leiðarljósi við fjölbreyttar ákvarðanir í samfélaginu. Í tölfræðinni eru líka vísbendingar um hvað þarf að gera betur og fram hjá öðru er alveg horft í mælingum.
Það hefur dregið úr reykingum, en hvað með munntóbaksnotkun? Verðum við ekki að fara að mæla hana og vinna markvissar í forvörnum? Þrátt fyrir jákvæða þróun getum við ekki verið sátt við að tæp 40% barna stundi íþróttir reglulega við lok grunnskóla. Mín reynsla segir mér að enn dragi úr hreyfingu við upphaf framhaldsskólans. Á sama tíma er ráðlegging landlæknis sú að öll börn og unglingar stundi miðlungs erfiða eða erfiða hreyfingu í minnst 60 mínútur daglega. Sveitarfélög, íþróttafélög og ríkið verða að vinna betur saman í þeim efnum.