fyrirspurnir á dagskrá.
Forseti getur ekki svarað nákvæmlega hvers vegna þessi tiltekna fyrirspurn er ekki á dagskrá í dag en vill vekja athygli á því að þegar verið er að reyna að koma þessu saman, svörum við fyrirspurnum hv. þingmanna, þarf ýmislegt að geta gengið upp. Í fyrsta lagi að þær efnislegu upplýsingar sem kallað er eftir liggi fyrir. Í annan stað að sá þingmaður sem spyr hverju sinni getið tekið þátt í fyrirspurnatímanum og hið sama á vitaskuld við varðandi þá ráðherra sem í hlut eiga.
Það er hins vegar þannig að gengið hefur mjög vel að fá fyrirspurnum svarað í munnlegum umræðum sem sést best á því að fjöldi fyrirspurna var á dagskrá fyrirspurnafundar fyrir viku síðan. Sömuleiðis er gert ráð fyrir því samkvæmt dagskrá í dag að einum þrettán fyrirspurnum verði svarað. Hæstv. fjármálaráðherra er ekki í þeim hópi og getur vel verið að þannig hafi staðið á hjá hæstv. ráðherra að hann hafi ekki átt þess kost að vera viðstaddur. Það er hins vegar augljóst mál að hér er verið að ganga mjög á þann stabba sem fyrir lá varðandi fyrirspurnir til munnlegs svars. Eftir því sem forseti kemst næst þá liggja núna eftir þetta fáeinar fyrirspurnir sem ekki hefur verið svarað. Þannig að forseti telur að það hafi gengið prýðilega að fá fyrirspurnum svarað sem hv. þingmenn hafa lagt fram.