uppbygging nýs Landspítala.
Herra forseti. Það mun koma fram í seinna svari hæstv. ráðherra hvað hv. þingmaður sem hér stendur veit. Ég veit að Alþingi er búið að samþykkja að verja hundruðum milljóna króna í hönnun á meðferðarkjarna við Hringbraut. Ég veit að Alþingi er búið að samþykkja að ráðast skuli í uppbyggingu við Hringbraut. Ég veit það líka, eftir því sem mér heyrist hæstv. forsætisráðherra vera að segja, að Háskóli Íslands og helstu sérfræðingar þar innan húss hafa lagt mikla áherslu á náið samband Landspítala – háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands, og ég heyri hæstv. forsætisráðherra nú segja að hann ætli ekki bara að byggja spítalann á nýjum stað heldur ætli hann að færa eitt svið Háskóla Íslands út í Garðabæ, samkvæmt því sem hann segir hér. Þannig að það eru fleiri opinberar stofnanir sem hæstv. ráðherra hyggst flytja.
Það er eðlilegt að ég spyrji, í ljósi þess að síðast þegar hæstv. forsætisráðherra lagði til breytta staðsetningu á spítalanum, sem áður hafði verið samþykkt að ætti að vera við Hringbraut, kom hæstv. heilbrigðisráðherra skömmu seinna og sagði að það væri ekki til umræðu. Því er ekki nema von að hv. þingmaður sem eitthvað veit (Forseti hringir.) spyrji hæstv. forsætisráðherra hvort ríkisstjórnin sé að velta því fyrir sér að breyta þessari staðsetningu og hvort ekki þurfi þá að ráðast í eðlilegt ferli um það ef taka á svo stóra ákvörðun, herra forseti.