dagur helgaður fræðslu um mannréttindi barna.
Herra forseti. Nú í ár eru liðin 27 ár frá því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna, barnasáttmálinn eins og hann er oftast nefndur, var lagður fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til undirritunar og fullgildingar af hálfu ríkja. Nánast öll ríki heims hafa fullgilt þennan mikilvæga mannréttindasamning.
Barnasáttmálinn markaði mikil tímamót í baráttunni fyrir réttindum barna. Barnasáttmálinn var fullgiltur af íslenska ríkinu árið 1992 og lögfestur hér á landi 20. febrúar 2013 og er nú hluti af íslenskri löggjöf. Eitt af meginverkefnum stjórnvalda eftir fullgildingu og enn frekar eftir lögfestingu samningsins var að kynna sáttmálann og innihald hans fyrir börnum og ekki síst fullorðnum. Margir telja að það hafi ekki tekist nógu vel. Þá tillögu sem við leggjum fram, talsmenn barna á þingi, teljum við mikilvægt skref í þá átt að barnasáttmálinn sé lagður til grundvallar öllu starfi skólasamfélagsins og geri það að verkum að börn átti sig á réttindum sínum en ekki síður ábyrgð sinni og skyldum gagnvart meðborgurum sínum.
Ég vil líka að lokum þakka allsherjar- og menntamálanefnd fyrir vel unnin störf í þessu máli.