145. löggjafarþing — 88. fundur,  15. mars 2016.

fjármálafyrirtæki.

589. mál
[15:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég átti fund með forsætis- og fjármálaráðherra Liechtenstein fyrri skemmstu þar sem við ræddum mikilvægi þess að botn fengist í þessi mál. Ég kynnti mér þá stöðu málsins. Það er rétt sem fram kom hjá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni að það er ágætisgangur í þessu máli, en síðast þegar ég spurði við höfðum samt sem áður ekki fengið endanlegt svar við því af hálfu framkvæmdastjórnarinnar hvort þær tillögur sem EFTA-löndin hafa komið sér saman um væru samþykktar og gætu orðið grundvöllur fyrir afgreiðslu málsins. Ég er samt sem áður vongóður um að það gerist og vonandi sem allra fyrst. Ef aðstæður leyfa kem ég fram með það mál á vorþingi.

Ég fann fyrir því í heimsókn minni til Liechtensteins að allt kapp er lagt á að ryðja úr vegi hindrunum fyrir því að menn hafi það sem stundum var kallað á mannamáli evrópska bankapassann, enda þykir þeim í því landi vera einkennilegt að vera eins og sakir standa með verri aðgang að Evrópu fyrir fjármálastarfsemi en nágrannar þeirra í Sviss sem ekki eru þátttakendur í innri markaðnum.

Varðandi uppljóstraramálið er mér ekki kunnugt um að það sé neitt sérstakt þar. Það mál hefur einfaldlega verið rætt í starfshópi og er í vinnslu í ráðuneytinu. Ég sé það fyrir mér að frumvarp fæðist á þessu ári.

Það eru engin áform um breytingar hvað varðar bankabónusa. Það mál var tiltölulega nýlega til umræðu hér í þinginu. Ég tel að næsta stóra skref sé að klára það mál.

Varðandi það sem snýr að regluverkinu og í bankamálunum almennt erum við (Forseti hringir.) í framhaldi af því að fara að takast á við hluti sem (Forseti hringir.) tengjast nýfengnu eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum.