145. löggjafarþing — 88. fundur,  15. mars 2016.

afglæpavæðing vörslu neysluskammta af fíkniefnum.

[15:18]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hefja þessa umræðu. Við höfum nokkuð rætt þetta málefni á þessum þingvetri í fyrirspurnatímum. Þetta er mikilvæg umræða.

Ég held að í upphafi sé gott að fara aðeins yfir þær reglur sem gilda um refsingar við fíkniefnabrotum og framkvæmd þeirra. Það er bæði fjallað um þessi brot í almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Við erum með almenn hegningarlög á ábyrgðarsviði innanríkisráðuneytisins en lög um ávana- og fíkniefni eru á ábyrgðarsviði heilbrigðisráðherra. Þarna er því um ákveðið samspil að ræða milli þessara tveggja ráðuneyta.

Í 173. gr. almennra hegningarlaga er fjallað um refsingu við fíkniefnabrotum. Ákvæðið er í þeim kafla laganna sem fjallar um brot sem hafa í för með sér almannahættu og er þar með í hópi brota sem valda almannahættu, svo sem breiða út alvarlega sjúkdóma og/eða valda eldsvoða sem getur haft í för með sér almannahættu. Þannig er þessu fyrir komið í lögunum í dag. Í lögum um ávana- og fíkniefni er einnig kveðið á um refsingar við fíkniefnabrotum en brot á þeim lögum geta varðað allt að sex ára fangelsi. Þar er líka að finna upptalningu á þeim efnum sem teljast ávana- og fíkniefni.

Þegar upp koma fíkniefnabrot hefur ýmist verið ákært fyrir brot gegn almennum hegningarlögum eða lögum um ávana- og fíkniefni. Í framkvæmd hefur mótast sú regla að ákært er fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni í smærri fíkniefnabrotum en fyrir brot gegn almennum hegningarlögum í stórum fíkniefnabrotum. Til grundvallar því hvort um stórfellt eða minni háttar brot er að ræða liggur fyrst og fremst magn þeirra efna sem um er að ræða hverju sinni. Þannig er ýmist ákært fyrir brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga eða laga um ávana- og fíkniefni eftir því hve mikið magn er undir. Því er yfirleitt ákært fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöfinni ef um er að ræða smærri skammta, eins og hér eru til umræðu, eða ef um er að ræða skammta til eigin neyslu. Þá reynir á lög um ávana- og fíkniefni sem heyra undir heilbrigðisráðherra.

Það er mikilvægt að þetta samhengi hlutanna sé skýrt þannig að um leið og beint er spurningu til innanríkisráðuneytisins, sem er rétt að gera á grundvelli almennra hegningarlaga, skiptir máli að hafa í huga að það eru ekki einungis heilbrigðismálin sem varða heilbrigðisráðherra heldur beinlínis þessi tiltekna löggjöf.

Ég vil líka benda á það, og ég held að það sé mjög mikilvægt þegar við lítum til smærri skammta sem hér eru ræddir, að þegar kemur að refsingum vegna fíkniefnabrota eru fyrir hendi fyrirmæli ríkissaksóknara nr. 2/2009, þar sem er heimild til að ljúka málum með lögreglusátt. Í þessum fyrirmælum þar sem fjallað er um brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni er kveðið á um heimild til að ljúka málum er varða kaup efna til eigin nota með sekt. Þessari heimild er beitt í framkvæmd þegar það á við og er þekkt að þetta á oft við um vörslu neysluskammta. Þá reynir á þessi fyrirmæli ríkissaksóknara um lögreglustjórasátt. Það þarf að hafa þetta heildarsvið allt í huga.

Óskað er eftir upplýsingum um hvort þær aðferðir sem hér eru notaðar hafi skilað árangri og hvort þær bitni kannski mest á þeim sem minnst mega sín. Ég get ekki svarað því í dag hvernig það er. Við höfum ekki sérstakar rannsóknir í þessum málaflokki sem ég hef á takteinum um það hvernig það hefur nýst öðruvísi en að við vitum að sættir hafa mikið verið notaðar í tengslum við þessa hluti. Ég vil samt líta á þetta sem heilbrigðismál líka þótt það sé að sjálfsögðu líka félagslegt vandamál. Þetta er á þeim mörkum. Það varðar bæði það fólk sem leiðist út í neyslu og líka samfélagið í heild. Þannig að ég er þeirrar skoðunar að það sé víðs fjarri að þetta snúist aðeins um refsipólitík.

Hv. þingmaður nefndi starfshóp heilbrigðisráðherra. Það þarf ekki að staldra meira við hann. Við höfum náttúrlega verið að bíða eftir að hann ljúki störfum. Það er mín skoðun að mikilvægt sé að sú niðurstaða liggi fyrir þegar við tökum næstu skref í þessum málum. Mér skilst að sá hópur sé faktískt á lokametrunum með að klára. Vinna þar hefur gengið þokkalega vel og menn hafa reynt að ná samkomulagi um breiðar línur. Ég held að þegar þeirri vinnu er lokið sé alveg ljóst að hefja þurfi samtal á milli ráðuneytanna um hvort gera eigi breytingar á refsilöggjöfinni og skoða refsipólitíkina betur. En enn og aftur, ég legg áherslu á það, eins mikilvægur og þáttur hegningarlaganna er í þessum málum, að þegar kemur að þessu tiltekna máli sem hv. þingmaður nefnir (Forseti hringir.) þá reynir mjög verulega á samspil milli heilbrigðissjónarmiðanna, sem að mínu mati eiga að vega mjög þungt, og síðan refsiramma og refsipólitíkur.