afglæpavæðing vörslu neysluskammta af fíkniefnum.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Eins og eðlilegt er var hún á breiðu línunum. Við erum ekki að tala um, ef maður leyfir sér að segja það, hæstv. forseti, konkret atriði í dag af því að við erum að bíða eftir tilteknum gögnum. En ég ítreka það sem ég sagði áðan vegna starfshópsins að það er minn skilningur, og ég hef leitað eftir því að það sé raunverulega þannig, að mjög stutt sé í niðurstöðuna og að menn hafi verið að reyna að ná saman um tiltekna hluti. Það hefur tekið tiltekinn tíma. Þetta er efni þess eðlis að það vekur enga furðu að það geti tekið töluverðan tíma að ná utan um það.
Mig langar rétt aðeins að nefna þetta. Við þurfum svolítið að sortera þessa umræðu, hvað við erum að tala um. Um leið og við gerum það er þetta allt samofið. Við erum að tala hér um heilbrigðismál númer eitt, tvö og þrjú í þessari umræðu. Það er enginn að tala um glæpahringinn eða glæpastarfsemina sem við sjáum líka í fíkniefnaheiminum og allir eru sammála um, að ég hygg, að eigi að vera refsiverð. Við erum að tala um þessa smáu neysluskammta númer eitt, tvö og þrjú, þannig að við þurfum að setja umræðuna í þann farveg.
Ég vil ítreka það sem ég sagði hér áðan að það er verið að beita lögreglusáttum í þessum málum. Vegna orða hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar vil ég nefna að reglur um sakavottorð eru líka til. Við komumst ekki hjá því í þessari umræðu, það endar alltaf með því að maður þarf að byrja að skilgreina hlutina til að komast áfram með þá. Mér finnst ekkert ólíklegt að við skoðum þessa þætti reglnanna þegar kemur að samspilinu á milli lögreglusáttar og skammta og síðan sakavottorðsins, að kanna hvort efni séu til að gera breytingar þar á.
Mér finnst þó, til þess að umræðan skili því sem við viljum að hún geri og við náum að ræða þetta á réttan hátt, að okkur vanti tiltekin gögn sem koma frá heilbrigðisyfirvöldum. Ég á von á því að þegar sú skýrsla liggur fyrir munum við ræða hana hér í þinginu. Þá er það bara framhaldið, í framhaldi af því reynir á alla löggjöfina undir innanríkisráðuneytinu og síðan heilbrigðismál.