fullnusta refsinga.
Virðulegi forseti. Ég ætla örstutt að taka til máls við 3. umr. til að fagna þeirri breytingu sem komið var inn á í frumvarpi milli 2. og 3. umr. Hún felur í sér að hugtakinu „betrun“ er bætt við í markmiðslýsingu frumvarpsins og sömuleiðis er þar skilgreining á því.
Mér þykir líka gott að hinar breytingarnar hafi verið gerðar sem eru í nefndaráliti hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Ég var eins og ýmsir aðrir með á því nefndaráliti með fyrirvara um heildarsamhengi frumvarpsins vegna þess að þótt hér sé mjög ríkur samhugur meðal flestra ef ekki allra þingmanna um hvert stefna skuli er pínulítið ólík sýn á það nákvæmlega hvernig útfæra á hvert og eitt atriði og sömuleiðis hversu langt á að ganga í ýmsum efnum. Mér sýnist þó vera ríkur vilji til staðar meðal allra til að bæta þessi mál. Mér finnst ágæt sú leið sem farin er í bráðabirgðaákvæði um að koma á fót starfshópum til að skoða frekar ýmis álitamál, eins og fram kom í ágætri umræðu sem átti sér stað áður en ég tók til máls.
Mér finnst gott að koma hér og gera stuttlega grein fyrir afstöðu minni. Sömuleiðis geri ég ráð fyrir að áhrifin af því að setja betrunina í markmiðslýsingu og skilgreiningu geri það að verkum að fangelsismálayfirvöld og yfirmenn fangelsa hafi meira svigrúm til að nýta betur úrræði sem þeir telja sig annars ekki endilega hafa fullt svigrúm til að beita. Það er enn fremur von mín að með því að hafa orðalagið með þessum hætti þarna inni sé meiri fókus á það í framtíðinni.
Allnokkuð var gagnrýnt við frumvarpið á sínum tíma að hvergi væri notað orðið „betrun“ nema í greinargerð, og þá mjög sjaldan, það væri hvergi að finna í frumvarpstextanum sjálfum, þ.e. í lagagreinum frumvarpsins. Því var ítrekað svarað, og að einhverju leyti með réttu, kannski miklu leyti, að þótt orðið sjálft væri ekki notað væri þarna ákveðin sýn að baki sem miðaði að betrun. Enginn er á móti betrun svo ég viti. Það er góðra gjalda vert. En ég held hins vegar að það skipti máli að það komi skýrt fram, jafnvel ef það er bara til þess að losna við gagnrýnina. Þá er alla vega skýrt að allir eru sammála um það og þá þarf ekki að rökræða það frekar hvort það er markmið frumvarpsins eða laganna eða ekki að stuðla að betrun. Þá er það bara skýrt og menn geta haldið áfram að ræða hvernig best sé að stuðla að betrun. Auðvitað eru misjöfn sjónarmið þar uppi.
Ég hlakka mikið til að sjá fleiri frumvörp um málið eftir að starfshóparnir taka til starfa og koma með tillögur, vegna þess að þá munu væntanlega koma áhugaverðar hugmyndir. Ég geri ráð fyrir því með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem reifuð hafa verið af hæstv. ráðherra og þeim þingmönnum sem fjallað hafa um málið að fullur samhugur sé um að stíga í átt til betrunar eins og mögulegt er.
Auðvitað kemst ég ekki hjá því að nefna það rétt í lokin að eitt af stóru vandamálunum sem þessi málaflokkur á við að etja er ekki endilega það að lögin eru gölluð. Þótt þau séu gölluð að ýmsu leyti að mínu mati er stór hluti vandans hreinlega afleiðing fjárskorts. Auðvitað er þetta tilfellið hjá sennilega flestum málaflokkum sem ríkið heldur utan um. En það er ágætt að halda því til haga að einfaldlega með því að auka fjármögnun í málaflokkinn væri hægt með núverandi fyrirkomulagi og samkvæmt gildandi lögum að stuðla að meiri betrun en tilfellið er nú. Það er eins og það er og auðvitað er það umræða sem á frekar heima í umræðum um fjárlög þegar allt kemur til alls. En það er þess virði að nefna það að það er grundvallarvandamál hversu illa málaflokkurinn er fjármagnaður. Það hefur bitnað verulega á starfsemi og jafnvel öryggi fanga og fangavarða, segja mér menn.
Síðan kemst Hólmsheiðarfangelsi í gagnið og þá mun vonandi flest fara í jákvæða átt í því efni. Oft er Hólmsheiðarfangelsi haft sem vonarglæta á móti allri gagnrýninni. Ég skil það mætavel enda er þar um stórstökk fram á við að ræða. En ég efast hins vegar um að þegar Hólmsheiðarfangelsi kemst í notkun að það leysi öll þau vandamál sem menn hafa nefnt það sem lausn við. Ég held að það leysi ákveðin vandamál, en mjög mörg vandamál verða ekki leyst nema með stefnubreytingu og/eða auknu fjármagni.
Að því sögðu fagna ég enn og aftur því viðhorfi sem oft kemur fram hér þótt ágreiningur sé um hversu langt eigi að ganga, í hvaða átt. Auðvitað er misjafnt hvernig fólk vegur og metur hin ýmsu gildi og rök og staðreyndir sem takast á. En mér þykir gleðilegt að sjá hversu mikill samhugur er meðal fólks á hinu háa Alþingi og auðvitað hjá hæstv. innanríkisráðherra um að þessi mál séu í þeim farvegi að við horfum sem minnst á eiginlega refsingu og sem mest á eiginlega betrun. Sjálfsagt er refsing stundum hluti af því, en fókusinn á að vera sá að stuðla að betrun. Það er langt í land en ég held að við séum þó á leið í rétta átt.