145. löggjafarþing — 89. fundur,  16. mars 2016.

fullnusta refsinga.

332. mál
[15:50]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að við séum komin á þann stað að greiða atkvæði um þetta frumvarp. Ég þakka nefndinni fyrir samstarfið. Við höfum lagt fram nokkrar breytingartillögur. Þess ber helst að geta varðandi þá umræðu sem skapaðist við 2. umr. málsins að við erum með nýtt ákvæði til bráðabirgða um innheimtuna þar sem ráðherra verði falið að setja á fót starfshóp til að endurskoða úrræði yfirvalda til innheimtu sekta og sakarkostnaðar með það að markmiði að bæta innheimtuhlutfall og gert er ráð fyrir því að starfshópurinn skili eigi síðar en 1. október 2016. Tilgangurinn með þessu bráðabirgðaákvæði er að mæta þeim sjónarmiðum sem koma fram, bæði í nefndinni sjálfri og eins í þingsal, um að leita allra leiða til að bæta innheimtuhlutfallið.