uppbygging innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Virðulegi forseti. Það er varla hægt að toppa uppvaskslíkingu hv. þm. Róberts Marshalls en ég tek undir hana því að hér er um að ræða einhvers konar viðbót við kerfi sem er engan veginn búið að samhæfa. Það er engan veginn búið að stilla þetta kerfi saman. Hér er lögð til einhvers konar viðbótaryfirbreiðsla yfir allt heila klabbið án þess að horfast í augu við það að samstilling kerfanna er ekki fyrir hendi.
Ég held að það mikilvægasta sem hægt væri að gera í uppbyggingu innviða fyrir ferðaþjónustuna í landinu væri að koma með samgönguáætlun og setja peninga í þá mikilvægu innviði sem samgöngurnar á Íslandi eru því að annað er í raun og veru pólitísk sýndarmennska.
VG mun sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.