145. löggjafarþing — 90. fundur,  17. mars 2016.

svar við fyrirspurn um Borgunarmálið.

[11:08]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Nei, hæstv. fjármálaráðherra hefur ekki brugðist við til að svara öllum þeim spurningum sem ég lagði fram í umræddri fyrirspurn. Til dæmis kemur hvergi fram svar við einni spurningunni: Hverjir eru kaupendur hlutanna og hvernig skiptist eignarhald hins selda milli kaupenda? Því hefur ekki verið svarað, ásamt fleiri spurningum.

Ef ég átti að skilja upphaf svars hæstv. fjármálaráðherra á þann veg að við þingmenn eigum ekki rétt á að fá upplýsingar um starfsemi Landsbankans vil ég aðeins geta þess að það er alveg klárt að þegar ríkið á meira en 50% í fyrirtæki er svarskylda gagnvart Alþingi en sé félagið hins vegar 49% í eign ríkisins er ekki svarskylda. Hér er eignarhluturinn það klár og það stór að það liggur í augum uppi að svarskyldan er algjör gagnvart Landsbankanum.

Ég hvet hæstv. ráðherra til að láta Landsbankann og aðra skrifa og senda ráðuneytinu svör við þessum spurningum. Það er (Forseti hringir.) alvanalegt að ráðuneyti óski eftir því við viðkomandi aðila að þeir svari spurningum fyrir ráðherra. Á endanum ber ráðherrann ábyrgð á svörunum og ég hvet hæstv. ráðherra til að vinna upp viðbótarsvar við þessum spurningum og leggja fyrir Alþingi.