utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér skýrslu hæstv. utanríkisráðherra Gunnars Braga Sveinssonar um utanríkis- og alþjóðamál. Sjálfur hefur auðvitað hæstv. ráðherra farið yfir meginefni þessarar skýrslu og vil ég þakka honum innilega fyrir það og tek undir það sem fram hefur komið í máli hans og þeirri forgangsröðun sem hann hefur kynnt á þessum vettvangi.
Ég vil sérstaklega nota þetta tækifæri, virðulegur forseti, og þakka einnig fyrir framsetningu skýrslunnar. Ég tel að það sé til mikillar fyrirmyndar hvernig þessi mál eru framsett hér á þingi og sérstaklega hvernig markmið og starfið fram undan er sett fram í lok hvers kafla sem gerir þetta víðfeðma og efnismikla efni sem í skýrslunni er mun aðgengilegra en annars væri og markvissara. Ég held að þetta séu vinnubrögð sem við þyrftum að taka okkur til fyrirmyndar í öðrum málum.
Ég vil einnig, virðulegur forseti, og ætla að gera það í ræðu minni að fara yfir það sem helst hefur verið til umræðu og er í þessari skýrslu og það sem helst hefur verið til umræðu á vettvangi hv. utanríkismálanefndar á því ári sem liðið er frá því slík skýrsla var síðast lögð fram hér.
Ég vil einnig nota tækifærið til þess að þakka innilega fyrir gott starf í utanríkismálanefnd og gott starf við hæstv. utanríkisráðherra, samstarf sem hefur verið til mikillar fyrirmyndar. Það hefur verið mjög ánægjulegt fyrir mig sem nýjan formann hv. utanríkismálanefndar að verða vitni að því hvernig hlutirnir eru unnir, bæði af hálfu hæstv. utanríkisráðherra og hans fólks, og einnig hv. nefndarmanna í utanríkismálanefnd og starfsfólkinu sem kemur að því verkefni að halda utan um hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Það skiptir miklu máli.
Auðvitað er það svo eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra að margt hefur breyst hvað varðar alþjóðamál á umliðnu ári, margt til hins betra auðvitað, en einnig margt sem hefur miður farið og margt sem við vildum sjá með öðrum hætti. Það vekur okkur enn og aftur til umhugsunar um mikilvægi öflugrar alþjóðlegrar samvinnu og varðstöðu um þau grundvallarréttindi sem við teljum mestu skipta og við verjum á alþjóðavettvangi sem eru auðvitað frelsi, lýðræði og sjálfsögð mannréttindi.
Ég vil einnig taka undir það sem kom fram í máli hæstv. ráðherra og lýtur að þeirri meginstoð í utanríkisstefnu hverrar þjóðar og sameiginlegri utanríkispólitík margra landa, sem er að tryggja öryggi íbúa.
Það er því miður þannig eins og kemur svo vel fram í þeirri skýrslu sem hér er til umræðu að enn eru víða stríðshrjáð svæði, allt of víða horfumst við í augu við það, og hryðjuverkaógnin er enn til staðar. Þrátt fyrir að það sé hárrétt sem komið hefur fram í máli nokkurra hv. þingmanna að það er ekki ný ógn, þá hefur hún engu að síður verið óþægilega áþreifanleg á umliðnum mánuðum. Við þurfum ekki að líta lengra en til Parísar, Kaupmannahafnar, Tyrklands, Bandaríkjanna og víðar til að sjá það. Sú ógn hittir auðvitað ekki aðeins fyrir þá sem fyrir þeim árásum verða í hvert og eitt skipti heldur hefur varanleg og eyðileggjandi áhrif á sameiginlegar undirstöður okkar allra. Þess vegna er svo mikilvægt að við reynum sameiginlega að vinna að þeim málum.
Ég tek undir með hv. þingmönnum sem nefnt hafa það að mikilvægt er að nálgast þau verkefni þannig að við komum ekki í veg fyrir einstaklingsfrelsi eða þau lýðræðisréttindi sem við viljum að til staðar séu.
Þess vegna er svo mikilvæg, virðulegur forseti, sú samstaða sem náðst hefur á vettvangi hv. utanríkismálanefndar um mál sem hæstv. utanríkisráðherra kynnti fyrir nokkru síðan og er þjóðaröryggisstefna sem hefur nú komið inn til þingsins og verður vonandi til umræðu og afgreiðslu á allra næstu dögum. Ég er mjög stolt af þeirri umræðu sem átti sér stað um þá stefnu í hv. utanríkismálanefnd þar sem okkur tókst í sameiningu að forgangsraða í þágu aðalatriða og ná sameiginlegri niðurstöðu um meginþætti og standa saman að nefndaráliti. Ég held að það skipti miklu máli þrátt fyrir að það sé alveg ljóst að einstaka fulltrúar í nefndinni og einstaka fulltrúar ákveðinna sjónarmiða hér muni að sjálfsögðu halda þeim á lofti með sérstökum bókunum, ekkert að því, en mestu skiptir að grundvallaratriðin eru skýr og þau eru sameiginleg. Þar er ekki aðeins að nefna það sem sú sem hér stendur, minn flokkur, ríkisstjórnin og meiri hluti þings, telur vera grundvallarafstöðu er varðar varnar-, friðar- og öryggismál sem er auðvitað aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu, samstarfið við Bandaríkin og samstarf við bandalagsþjóðir okkar um frið, varnir og öryggi, heldur eru líka nefndir aðrir þættir í þjóðaröryggisstefnunni er varða öryggi og varnir sem tengjast t.d. náttúruvá, umhverfismálum, netöryggi, fæðuöryggi og almannaöryggi í víðum skilningi. Um þetta var afar góð umræða á vettvangi utanríkismálanefndar. Eftir marga langa og stranga fundi tókst okkur að sameinast um nefndarálit sem ég ítreka að ég er mjög stolt af og þakklát fyrir.
Ég held að þrátt fyrir að við munum samþykkja öfluga og mikilvæga þjóðaröryggisstefnu, þá höldum við stöðugt áfram þessari umræðu. Nýjar áskoranir koma alltaf upp á þessum vettvangi. Við höldum áfram að skiptast á skoðunum, en það er alveg ljóst að með þeirri þjóðaröryggisstefnu sem hæstv. utanríkisráðherra hefur lagt mikla áherslu á og eftir vinnu sameiginlegrar og þverpólitískrar þingmannanefndar erum við komin skrefinu lengra í þessum málaflokki hér á Íslandi.
Virðulegur forseti. Það hafa margir þingmenn og þar með talinn hæstv. utanríkisráðherra komið inn á einn mesta fjölda flóttamanna í heiminum frá síðari heimsstyrjöld sem við höfum orðið vitni að á umliðnum mánuðum og missirum, ekki bara í Evrópu heldur alls staðar í heiminum. Þetta hefur kannski verið það mál sem mest hefur verið rætt á vettvangi hv. utanríkismálanefndar á liðnu ári og svo margir þættir þess að það væri allt of langt mál að telja það upp hér.
Rauði þráðurinn í þessu öllu saman er sá að einstaklingar flýja ógnarstjórnir, flýja ástand, flýja óöryggi og flýja til landa þar sem friðurinn er meiri, tækifærin eru fleiri og undirstöðurnar til þess að búa sér og sínum öruggt og gott líf eru fjölbreyttari, fleiri og varanlegri en það ástand sem þetta fólk býr við. Þetta er eitt flóknasta viðfangsefni sem við stöndum frammi fyrir alþjóðlega, en mikilvægt er að við tryggjum að það verði ekki að einhvers konar risastóru vandamáli innan hvers lands fyrir sig sem við náum illa eða náum ekki að leysa úr.
Líkt og fram kom í ræðu hæstv. utanríkisráðherra þá hefur Ísland lagt sannarlega sitt lóð á vogarskálarnar í þessum málum og gripið til ýmissa aðgerða, ekki einungis í samstarfi við aðrar þjóðir á alþjóðavettvangi, heldur einnig með sértækum aðgerðum innan lands. Ég fagna því að góð samstaða hefur verið um það á þingi að við tökum á þessum vanda og viðfangsefni, við fögnum því að hingað komi fleiri en einungis þeir sem hér fæðast heldur líka þeir sem hér vilja búa. Þetta hefur leitt af sér að við höfum rætt mjög t.d. á vettvangi hv. utanríkismálanefndar þætti er tengjast landamæravörslu. Það er mjög eðlilegt og er fylgifiskur þessarar umræðu. Mikill tími hefur farið í það á vettvangi hv. utanríkismálanefndar á undanförnum mánuðum að ræða sérstaklega um Schengen, um samstarf Evrópuríkja, um ytri varnir á landamærum og síðan varnir einstakra landa.
Ég hef sagt það sem mína skoðun og hef sannfærst um það enn frekar í störfum mínum í hv. utanríkismálanefnd, gerði það auðvitað líka sem innanríkisráðherra á sínum tíma, að kostirnir í Schengen-samstarfinu eru mun fleiri en gallarnir. Ég tel að þrátt fyrir að Schengen-samstarfið standi frammi fyrir erfiðum áskorunum, gríðarlega stórum viðfangsefnum og kannski veruleika sem menn og konur sem komu að því á sínum tíma sáu ekki fyrir, þá eigum við að standa vörð um þau meginmarkmið sem voru grundvöllur þess í byrjun. Það hefur ekkert breyst í gildi þeirra samræmdu reglna, varna og eftirlits sem samstarfið veitir okkur hér á Íslandi, öðru nær, ég tel að þörfin fyrir það hafi aukist og mikilvægi þess að við stöndum vörð um það sé ekki síðra í dag en það var þá. Vonir mínar standa til þess að okkur takist að viðhalda því samstarfi og vinna með það, en að það breytist ekki til hins verra. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir Ísland sem hefur tekið þá ákvörðun, alla vega eins og staðan er nú, að standa utan við Evrópusambandið. Þá er þetta samstarf okkar sérstaklega mikilvægt.
Talandi um það, virðulegur forseti, þá er kannski helsta breytingin á umræðunni í utanríkismálanefnd á undanförnum mánuðum sú að ósköp lítið er rætt um aðildarviðræður eða hugsanlega aðild að Evrópusambandinu. Við höfum verið uppteknari á vettvangi nefndarinnar að standa vörð um þá Evrópustefnu sem ríkisstjórnin hefur samþykkt og tryggja að við séum virkir og öflugir þátttakendur í EES og EFTA og samtökum á vettvangi Evrópu sem við teljum mikilvægt til þess að tryggja okkar hagsmuni.
Ég vil nefna í því samhengi hversu mikilvægt EFTA er fyrir Ísland, þá umræðu sem hefur verið nokkuð fyrirferðarmikil á þingi á síðustu vikum, það eru fríverslunarsamningar Íslands og fríverslunarsamskipti sem ég tel að séu mjög mikilvæg og eigi að vera undirstaðan í okkar viðskiptahagsmunum alþjóðlega. Ég fagna því að við séum að vinna ötullega að því, bæði á vettvangi EFTA og síðan sér og sjálf, það er mjög mikilvægt. Ég tel að við höfum náð miklum árangri í því. Hluti hv. utanríkismálanefndar fór t.d. til Japans fyrir nokkrum dögum og átti þar samtöl og samskipti við japönsk stjórnvöld um þann sameiginlega vilja þingsins hér að efna til fríverslunarsamninga við það stóra markaðssvæði og tryggja þannig öflugri viðskipti á milli þessara ríkja. Þannig tel ég að við eigum að vinna gagnvart öðrum og fleiri ríkjum, sérstaklega gagnvart nýjum mörkuðum.
Virðulegi forseti. Mig langar rétt í lokin að nefna þann ánægjulega árangur sem orðið hefur á alþjóðavettvangi á síðasta ári, þá er auðvitað ekki hægt annað en líta til Parísarráðstefnunnar þar sem menn náðu verulegum og mikilvægum og einstökum árangri er varðar umhverfismál. Umhverfismál eru eitthvað sem Ísland hefur mikla aðkomu að og á að hafa mikla aðkomu að og getur einbeitt sér að því að sýna hvernig hægt er að ná árangri í þeim málum með sjálfbærni að leiðarljósi sem okkur hefur tekist ljómandi vel.
Ég vil líka nefna ný þróunarmarkmið eða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem hafa verið til talsverðrar umræðu á vettvangi utanríkismálanefndar og sérstaklega tel ég mikilvægt hvernig þar er komið inn á þætti er varðar jafnrétti kynjanna. Það er nefnilega svo að við öll sem höfum haft þann starfa einhvern tímann, sérstaklega á síðustu árum, að vera boðberar þess sem vel er gert á Íslandi á alþjóðavettvangi, finnum og skynjum hversu mikinn hljómgrunn áherslur okkar í jafnréttismálum eiga á alþjóðavettvangi. Það hefur glatt mig mjög í samskiptum mínum við sendifulltrúa Íslands erlendis að sjá hversu mikla áherslu utanríkisþjónustan er farin að leggja á þetta málefni og hversu mikinn hljómgrunn hún finnur gagnvart því að Ísland miðli sinni reynslu og gefi til baka af því sem hefur gengið svo vel hér. Ég hef verið þeirrar skoðunar mjög lengi að árangur okkar í jafnréttismálum sé ein af meginstoðunum í íslensku samfélagi, og hef enn frekar sannfærst um það núna þegar Ísland mælist sjöunda árið í röð efst á þeim lista þjóða sem standa sig hvað þetta varðar. Ég er mjög stolt af þeim árangri og tel að við eigum að nýta alla okkar krafta til að tryggja að sá árangur verði sýnilegur. Það getum við gert, virðulegur forseti, með ýmsum hætti. Margir þingmenn og kannski sérstaklega þingkonur hafa lengi sinnt þessu frá þessum vettvangi.
Þannig höfum við margar sem í þessum sal erum nú og áður verið virkar í alþjóðlegum samtökum þingkvenna sem kallast WIP, Women in Parliaments Global Forum. Þannig tók Jóhanna Sigurðardóttir sæti í ráðgjafaráði samtakanna árið 2013 sem fyrrverandi forsætisráðherra. Ári síðar heimsóttu samtökin sérstaklega þennan sal hér til að fá að kynnast þessum árangri. Þessi samtök hafa síðan óskað eftir því að sú sem hér stendur taki að sér formennsku í framkvæmdastjórn samtakanna og hef ég orðið við því enda tel ég að það fari mjög vel saman við það hlutverk mitt að vera formaður utanríkismálanefndar og í þeim stóra hópi íslenskra kvenna sem hefur notið þess að búa í landi þar sem litið er á það sem sjálfsagðan, eðlilegan og mikilvægan hlut að konur taki þátt í stjórnmálum til jafns við karla.
Það erum ekki bara við þingkonurnar í þessum sal sem getum haft áhrif alþjóðlega hvað þetta varðar. Þeir íslensku karlmenn sem sitja hér geta einnig átt stórt hlutverk í þeirri alþjóðlegu vitundarvakningu og því samstarfi sem á sér stað um nauðsyn þess að heimurinn nýti sér krafta karla og kvenna til jafns. Þannig hefur hæstv. utanríkisráðherra verið forgöngumaður um sérstakt framtak til að auka hlut karla á þessum vettvangi með svokölluðum „barbershop“-ráðstefnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og í tengslum við HeForShe-átakið. Ég hef áður, reyndar mjög oft áður, notað tækifærið til þess að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir það frumkvæði, vil gera það aftur hér og nú, veit og hef skynjað að það hefur vakið athygli og aðdáun á alþjóðavettvangi. Ég vil hvetja hann og aðra þingkarla, þingmenn, sem hér sitja til þess að nýta hvert það tækifæri sem þeir fá til þess að lofa þann árangur sem við höfum náð og miðla þeirri reynslu sem við höfum.
Að lokum, virðulegur forseti, ítreka ég þakkir mína fyrir vel unna skýrslu hæstv. utanríkisráðherra. Ég hef hér í örlitlu yfirlitsformi gert ráð fyrir því helsta sem þar hefur komið fram og hefur verið til umræðu á vettvangi utanríkismálanefndar og hlakka til að halda áfram að fylgjast með umræðunum í dag.