145. löggjafarþing — 90. fundur,  17. mars 2016.

utanríkis- og alþjóðamál.

611. mál
[14:22]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög fróðlegt svar og afstöðu hans í þessu, sem mér finnst mjög skynsamleg. Ég tek undir sjónarmið hans um að ef ekki verður hægt að varðveita samstarf á sviði dómstóla og löggæslu verði að fara að leggja drög að annars konar formi á alþjóðlegu samstarfi.

Ég held að það séu hagsmunir allra þjóða að skiptast til dæmis á upplýsingum um glæpahringi eða glæpamenn og ferðalög þeirra. Það er augljóst að allir mundu vilja eiga slíkt samstarf við lögregluyfirvöld okkar.

Ég held að það hljóti að vera leiðir til að gera þetta en í ljósi þessara ógna þarf að hefjast undirbúningsvinna núna.

Varðandi sjálft samstarfið um Evrópska efnahagssvæðið hef ég sem þingmaður orðið var við að talað er um að við þurfum að grípa fyrr inn í, vera virkari á fyrri stigum. Ég fékk það svar þegar ég fór að benda á að hérna hefðu orðið mistök fyrir átta árum að ég hefði betur verið á þingi og nefnt það þá, af því að maður á að grípa snemma inn í.

Það er ólýðræðislegt að eitthvað sem ég hef á prjónunum akkúrat núna bindi einhvern eftir átta ár, að sá sem kemur eftir átta ár og er lýðræðislega kjörinn geti ekkert gert vegna þess að ég tók ákvörðun sem er algjörlega andstæð öllu því sem er uppi átta árum seinna.

Þetta er kviksyndi sem erfitt er að losna úr, sýnist mér. Það er ekki mjög lýðræðislegt að lýðræðislega kjörinn fulltrúi geti ekki haft nein áhrif á þetta samstarf. Mér finnst það fela í sér dóm eða endalok samstarfsins að það sé algjörlega óumbreytanlegt. Ég sé að Bretar eru að hugsa um að ganga út úr sjálfu Evrópusamstarfinu vegna þess að þeim finnst þeir ekki geta gert neinar breytingar. Þetta miðar allt að einum punkti, sífellt nánari samruna. Þetta er einstefnusamningur, það er hvorki talað né hlustað. (Forseti hringir.) Það er ekki gott í sambandinu.

Hvað getum við gert til að breyta því?