145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

störf þingsins.

[10:55]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég er mjög sammála því að það á að reyna að hafa öll gögn sem máli skipta við afgreiðslu mála opinber, líka um samskipti við kröfuhafana á seinni missirum og hvar Íslendingar eiga peninga falda í skattaskjólum o.s.frv. Ég er mjög mikill talsmaður gagnsæis og vonandi getum við öll sameinast um það.

Ég ætlaði að gera hér athugasemdir við það sem ég tel nokkuð undarlega stjórnsýslu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins hvað varðar upphaf grásleppuvertíðar á þessu vori. Búið var að gefa út reglugerð um að veiðar skyldu hefjast 20. mars á norðursvæðinu, síðan með fimm daga fyrirvara er allt í einu komin ný reglugerð þar sem því er seinkað um 10 daga. Verður uppi fótur og fit af eðlilegum ástæðum og þá er hörfað hálfa leið og nú er í gildi reglugerð í bili þar sem byrja má 26. mars. Það er stórfurðuleg ráðstöfun og virðist gerð í ótrúlegu tómarúmi gagnvart veruleikanum sem þeir standa frammi fyrir sem voru að undirbúa grásleppuveiðar á fullri ferð dagana fyrir áætlað upphaf veiða. Það felur í sér að ráða mannskap á bátana. Oft fá sjómenn af öðrum skipum frí til þess að fara á grásleppu. Það lýtur að því að haga öðrum veiðiskap skipanna fram að grásleppuvertíðinni með tilteknum hætti. Veiðarfæri eru sett í land og önnur tekin um borð o.s.frv. og síðan er umtalsverð starfsemi er í kringum það að taka við grásleppunni í landi, vinna hana og frysta og búið er að ráða mannskap í það og undirbúa vinnslu í landi til þess.

Að láta sér detta það í hug að seinka síðan upphafi vertíðarinnar um tíu daga er auðvitað alveg stórfurðulegt. Ég held að það hefði verið meiri manndómsbragur að því að ráðuneytið og vinir mínir þar hefðu horfst í augu við að þarna voru gerð mistök og bara viðurkennt þau að fullu og leyft mönnum að byrja á þeim degi sem til stóð.

Það er líka mat manna að göngurnar séu frekar snemma á ferðinni þannig að þeir sem gerst þekkja til við norðan- og norðaustanvert landið telja einfaldlega það að seinka vertíðinni um tíu daga (Forseti hringir.) væri ávísun á að hún yrði mjög endaslepp í hinn endann (Forseti hringir.) og grásleppan kannski hálfhrygnd o.s.frv. og öll komin upp í fjörur löngu (Forseti hringir.) áður en dögum þeirra lyki.

Ég skora því á hæstv. atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og bið (Forseti hringir.) forseta um að ganga í lið með mér í þeim efnum (Forseti hringir.) að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kippi þessu í liðinn.