menningarminjar o.fl.
Forseti. Það verður ekki undan því vikist að nefna í ræðustól Alþingis í lok þessarar viku að það liggur fyrir að forsætisráðherra hefur haldið mjög mikilvægum upplýsingum leyndum fyrir þjóðinni og samstarfsflokknum um fjármál sín og hagsmunatengsl. Það kom fram í fyrirspurnatíma í gær að hæstv. fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra þurfi sjálfur að gera grein fyrir þessu máli, þ.e. að fjármálaráðherra muni ekki gera það.
Nú hefur forsætisráðherra skrifað pistla á fésbók og á bloggsíðu sinni, hefur ekki viljað ræða við fjölmiðla, hann hefur ekki komið hingað á Alþingi til að ræða þetta mál. Það er svo sem í þeim anda sem samskipti ráðherrans hafa verið við Alþingi, en ég vil spyrja forseta, og freista þess að biðja hann að vera með okkur í því að kalla fram svör ráðherrans, hvernig hann hyggist bregðast við þessu ákalli.