145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[14:43]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að endurtaka neitt sem hér hefur verið sagt, en mér þykir ræða hv. þm. Frosta Sigurjónssonar undirstrika að umræðunnar er þörf. Þess vegna er mjög vont að við séum að fara í páskafrí án þess að ræða þetta. Hann undirstrikar það sjálfur að mínu mati.

Ég kem hingað til að nefna að forsætisráðherra sjálfur var ekki af einhverjum ástæðum, sjálfsagt ágætum, viðstaddur atkvæðagreiðslu um siðareglurnar. Ég vænti þess fastlega að það sé alveg lögmæt ástæða fyrir því, en í ljósi þessa og 8. gr. þeirra siðareglna verður maður að spyrja sig hvort hv. þingmaður komi í framtíðinni til með að segja að hann sé ekki hlynntur þeim reglum. Ef hann er hlynntur siðareglunum hlýtur hann að skilja mætavel þá gagnrýni sem er komin upp og vissulega að menn spyrji stórra spurninga þegar kemur að þessu öllu saman.

Hin spurningin er síðan, ef hann er hlynntur þeim, hvort hann sé þá til í að segja hér að hann sé það. Ef hann er það ekki verðum við að spyrja okkur til hvers við höfum verið að setja siðareglur. Við settum þær hér fyrir okkur sjálf. Það er svona umræða sem þarf að eiga sér stað, virðulegi forseti, þess vegna er svo vont að við séum (Forseti hringir.) að fara í tveggja vikna frí áður en við getum átt þessar umræður.