145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[14:44]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hvað er hér til umræðu? Hver er krafan sem við þingmenn erum að gera til forseta Alþingis og forsætisráðherra? Er hún ósanngjörn? Er hún ómálefnaleg? Er hún óframkvæmanleg?

Virðulegi forseti. Hún er mjög einföld. Við gerum þá sanngjörnu kröfu, og hæstv. fjármálaráðherra hefur tekið undir hana, að forsætisráðherra komi í þingsal og geri þinginu, og þá þjóðinni í leiðinni, grein fyrir aðkomu sinni að erlendu peningafélagi geymdu í skattaskjóli í útlöndum og hagsmunatengslum sínum því tengdu.

Þetta er ekki mjög flókið. Þetta er sanngjörn krafa, það er auðvelt að koma henni í framkvæmd. Hún er sem sagt vel framkvæmanleg ef forseti þingsins vill það.

Hér eru engar ásakanir um nokkurn skapaðan hlut á ferð heldur er verið að óska eftir því og gefa forsætisráðherra þá (Forseti hringir.) sanngjörnu málaleitan að hann komi sér í ræðustólinn og ræði þetta við þingið.

Það er sanngjörn krafa, virðulegi forseti.