145. löggjafarþing — 91. fundur, 18. mars 2016.
menningarminjar o.fl.
606. mál
Hæstv. forseti. Hæstv. forsætisráðherra er hér mættur til að sinna skyldu sinni, mæla fyrir frumvarpi sem er á dagskrá þingfundar. Fjárhagur eiginkonu hæstv. ráðherra er ekki á dagskrá þingfundar. Umræðan er góð um málið sem liggur fyrir og fjölmargir hv. þingmenn á mælendaskrá. Ég hvet því virðulegan forseta til að halda sig við dagskrá fundarins og halda áfram með það mál sem er hér á dagskrá.