145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[14:57]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram umræðu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar og fleiri lögum. Hér er verið að leggja til að Minjastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands verði sameinaðar og út úr þeirri sameiningu komi Þjóðminjastofnun, sem fer undir væng hæstv. forsætisráðherra. Ég hlustaði af gaumgæfni á mál hæstv. forsætisráðherra þegar hann hafði framsögu um þetta mál og hjó eftir því að hann taldi að haft hefði verið víðtækt samráð við hlutaðeigandi aðila í þessum faggeira, ef við nefnum hann svo, að ráðgjafarfyrirtækið Capacent hefði unnið fýsileikakönnun og tekin hefðu verið viðtöl við starfsmenn, fornminjanefnd, húsafriðunarnefnd, svo eitthvað sé nefnt. Hann taldi að þetta mál allt væri vel undirbúið og tilbúið til að fara inn á Alþingi til frekari meðferðar og hugurinn stefndi í þá átt að þetta mál yrði afgreitt hér í vor.

Annað höfum við þingmenn fengið að heyra og fengið inn á borð til okkar. Það er mikill urgur og óánægja í greininni hjá því fagfólki sem starfar í þessum stofnunum. Eins og kom fram er saga Þjóðminjasafns Íslands orðin 150 ára. Minjastofnun Íslands kom til eftir sameiningu árið 2013 og ekki hafa heyrst gagnrýnar raddir varðandi þá ákvörðun svo að fagfólki í þessum geira virðist vera brugðist yfir gassagangi hæstv. forsætisráðherra. Honum virðist vera það mikið kappsmál að keyra málið sem hraðast í gegn.

Til að fara aðeins yfir þá gagnrýni sem komið hefur fram frá ýmsum fagaðilum ætla ég að byrja á því, með leyfi forseta, að vitna í umfjöllun Félags fornleifafræðinga. Þeir tala um að þetta hafi allt gengið mjög hratt fyrir sig. 19. febrúar fjalla félagar í Félagi fornleifafræðinga um þessi mál og óska eftir því með pósti á forsætisráðuneytið að fá upplýsingar um viðræður um sameiningu Minjastofnunar og Þjóðminjasafnsins. Þá kemur svar frá forsætisráðuneytinu á þennan veg, með leyfi forseta. Ég undirstrika að þetta er 19. febrúar nú í ár:

„Forsætisráðherra hefur skipað stýrihóp sem ætlað er að greina, meta og eftir atvikum endurskipuleggja þau verkefni sem Minjastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands sinna skv. lögum. Nú stendur yfir vinna við verkefnagreiningu Minjastofnunar og Þjóðminjasafns sem unnin er af ráðgjöfum okkar í samvinnu við forstöðumenn stofnananna tveggja. Í þeirri vinnu er rætt við stjórnendur og starfsmenn stofnana og samhliða verður rætt við hagsmunaaðila. Á þessu stigi hafa engar ákvarðanir verið teknar og viðfangsefnið er til greiningar og mats af sérfræðingum Capacent og í kjölfarið hefst hin eiginlega vinna stýrihópsins.“

Í dag er 18. mars. Það er aðeins mánuður síðan þau skilaboð komu frá forsætisráðuneytinu að engar ákvarðanir hefðu verið teknar og viðfangsefnið væri til greiningar. Á þeim bæ ganga hlutirnir stundum hratt fyrir sig og stundum ekki. Á vefsíðu Félags fornleifafræðinga stendur, með leyfi forseta:

„Í kjölfarið fékk félagið, ásamt nokkrum fornleifafræðingum, safnafólki og arkitektum, fundarboð frá Capacent. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 4. febrúar og sat formaður félagsins fundinn. Hér á eftir fylgir samantekt um þær staðreyndir sem fram komu á fundinum ásamt helstu sjónarmiðum sem þar komu fram.“

Niðurstaðan var að allt það fagfólk sem sat fundinn var sammála um að sameining Minjastofnunar Íslands og Þjóðminjasafns Íslands væri slæm hugmynd og var meðal annars bent á að ástæða þess að Fornleifanefnd ríkisins var stofnuð á sínum tíma var til að greina á milli Þjóðminjasafns sem hafði stundað rannsóknir í faginu og þess sem færi með löggjafar- og eftirlitshlutverk með rannsóknum og ekki væri talið ásættanlegt að sami aðili sæti beggja vegna borðsins.

Áfram segir:

„Minjastofnun Íslands varð til í núverandi mynd í upphafi árs 2013 og er því aðeins ríflega þriggja ára gömul í því formi sem hún er í dag. Á þessum þremur árum hefur verið unnið að stefnumótun, starfsmönnum fjölgað og ýmislegt gott áunnist. Það er hins vegar vart komin fullnægjandi reynsla á stofnunina enn þá til að meta megi gengi hennar og ávinning og full ástæða til þess að gefa henni betri tíma til að ná markmiðum sínum og þróast.“

Þetta leggja menn í Félagi fornleifafræðinga inn í þessa vinnu og segja enn fremur:

„Þjóðminjasafn hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á það hlutverk safnsins sem snýr að rannsóknum, m.a. með drögum að samningi við Háskóla Íslands sem enn hefur ekki verið samþykktur. Lítil reynsla er komin á þetta aukna vægi rannsókna og var bent á að þetta nýja rannsóknarvægi fari illa saman við eftirlits- og löggjafarhlutverk MÍ, líkt og í gamla daga, og að gefa þurfi safninu betri tíma til að þróa þetta rannsóknarhlutverk sitt áður en hægt sé að meta hvernig safninu hefur tiltekist á þessu sviði.

Félagið lýsti yfir áhyggjum á því að möguleg sameining myndi auka við enn meiri óstöðugleika á sviði menningarmála þar sem undanfarin ár hafa einkennst af nýjum löggjöfum, stofnun og sameiningu nýrra ríkisstofnana og stefnumótunarvinnu. Félagið lýsti einnig yfir áhyggjum yfir að mögulegri sameiningu fylgdi niðurskurður, t.d. í starfsmannafjölda en á allra síðustu árum hafa báðar stofnanir náð að fjölga starfsmönnum eitthvað, þótt enn skorti talsvert á að þær hafi nógu marga starfsmenn til að sinna þeim verkefnum sem þeim eru ætluð samkvæmt lögum.“

Sem fyrr segir var það einróma álit fundar að sameining Þjóðminjasafns og Minjastofnunar væri vond hugmynd.

Fundargestir á þessum fundi Félags fornleifafræðinga sóttust eftir upplýsingum um hvað lægi að baki endurskoðun á flokknum, en ekki fengust nægilega skýr svör við því að þeirra mati.

Þarna kemur fram mikil gagnrýni sem ég get ekki séð að hafi verið tekið tillit til. Þetta er 19. febrúar 2016 og 26. febrúar 2016 berst forsætisráðuneytinu yfirlýsing frá Félagi fornleifafræðinga út af því frumvarpi sem við erum að fjalla um. Í því segir, með leyfi forseta:

„Félag fornleifafræðinga hafnar frumvarpinu í heild sinni á þeim forsendum að vinnubrögðin við vinnslu þess hafi verið ófagleg og beri vitni um skort á þekkingu á málaflokknum. Frumvarpið ber hratt að og var unnið í sáralitlu samráði við fagaðila. Stöðugleika hefur verið náð í minjavörslu frá því að Minjastofnun Íslands var stofnuð 2013 en fyrirliggjandi frumvarp er afturför sem mun hafa varanleg og skaðleg áhrif á starfsumhverfi fornleifafræðinga og minjarnar í landinu. Vegið er alvarlega að frelsi til vísindarannsókna með tillögu um miðstýrða rannsóknarstefnu í fornleifafræði. Verði frumvarpið að lögum mun það binda endi á um 150 ára sögu Þjóðminjasafns Íslands á sviði fornleifarannsókna. “

Undir þessa ályktun og yfirlýsingu skrifar formaður Félags fornleifafræðinga, Sólrún Inga Traustadóttir.

Maður hefði haldið í ljósi þessa að hæstv. forsætisráðherra gæfi málinu meira andrými og reyndi að ná fram breiðari sátt um málið, sér í lagi þar sem þetta virðist vera honum hjartans mál og mikið kappsmál. Allir þekkja áhuga hæstv. forsætisráðherra á vernd gamalla húsa og verndun svæða í byggð og gott og vel, ég ætla ekki að gagnrýna það, það er mjög gott að hæstv. forsætisráðherra eigi sér áhugamál eins og aðrir. En það er ekki þar með sagt að það eigi heima í forsætisráðuneytinu þótt hann stýri því nú um stundir. Það væri eðlilegt að tekið væri tillit til þess fagfólks sem varar eindregið við sameiningunni og taldi að verið væri að taka tillit til þeirra ábendinga sem komu fram þegar Capacent leitaði eftir áliti þeirra á drögum að þessu frumvarpi.

Ég get nefnt fleiri gagnrýnisraddir sem hafa komið fram um drögin að frumvarpinu sem þessir aðilar fengu að sjá fyrir mjög skömmum tíma. Það er meðal annars námsbraut í fornleifafræði við Háskóla Íslands sem lýsir yfir eindreginni andstöðu við hugmyndir um að sameina Minjastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands og bendir á að margt megi bæta í framkvæmd og forustu íslenskrar minjavörslu, en stofnanafyrirkomulag hennar sé ekki vandamál.

Stjórn Félags íslenskra safna og safnamanna lýsir einnig yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar sameiningu Minjastofnunar Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Félagið telur að með sameiningu hverfi Þjóðminjasafnið frá rannsóknarhlutverki sínu þar sem slíkt samræmist ekki hlutverki fyrirhugaðrar Þjóðminjastofnunar sem við breytinguna verður stjórnsýslustofnun. Félagið telur að breytingin muni rýra gildi Þjóðminjasafns Íslands sem og trúverðugleika þess, en almennt er talið innan safnafræða að rannsóknarhlutverk safna renni stoðum undir þá framþróun og nýsköpun sem nauðsynleg sé í safnastarfi.

Það var komið inn á það áðan og ég vil nefna það líka að Þjóðminjasafn Ísland er eitt af þremur höfuðsöfnum auk Listasafns Íslands og Náttúruminjasafns Íslands. Skerðingin sem óhjákvæmilega verður á starfsemi Þjóðminjasafns Íslands við fyrirhugaða breytingu mun draga úr vægi þess sem eitt af þremur skilgreindum höfuðsöfnum samkvæmt safnalögum frá 2011.

Í lokin vil ég nefna ályktun aðalfundar íslensku ICOMOS-nefndarinnar en íslenska ICOMOS-nefndin starfar í anda markmiða alþjóðasamtaka um verndun og viðhald menningarsögulegra minja og umhverfis þeirra og tekur þátt í verkefnum sem stuðla að verndun íslenskra menningarminja og menningararfsins. Sá aðalfundur átelur mjög þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við undirbúning og sameiningu Minjastofnunar og Þjóðminjasafnsins við gerð lagafrumvarpsins sem við ræðum.

Það hnígur allt í sömu átt hvað varðar þetta mál, það er illa undirbúið, vanreifað og fagaðilar í greininni eru mjög ósáttir við framkvæmd þess. Ég tel því að breyta þurfi (Forseti hringir.) fleiru hér en, eins og hæstv. forsætisráðherra kom inn á, að endurskoða megi nafngiftir.