menningarminjar o.fl.
Herra forseti. Ég tek hjartanlega undir það með hv. þingmanni að það sé nauðsynlegt að fá skýrslu Capacent sem fylgiskjal í þessu máli fyrst öll ábyrgðin var lögð í hendur þeirra sem maður hefði nú haldið að hefðu ekki þá faglegu þekkingu innan borðs til að vega og meta kosti og galla þessarar sameiningar og þegar svo sterkar gagnrýnisraddir koma úr greininni. Ég hef ekki fundið, enn sem komið er að minnsta kosti, neina rödd úr greininni sem mælir með þessu eða telur að þetta sé gott skref að taka, að minnsta kosti ekki eins og málið er lagt fram.
Ef menn gæfu sér lengri tíma og ynnu málið með því fagfólki sem þarna er á ferðinni og vilji lægi fyrir að reyna að endurskoða og styrkja og efla Minjastofnun og það hlutverk sem hún stendur fyrir og Þjóðminjasafn, þetta höfuðsafn landsins, væri eflaust hægt að finna einhvern samnefnara sem menn gætu frekar sætt sig við.
En þessi göslagangur í hæstv. forsætisráðherra einkennist svolítið af því að þetta eigi að ganga fram, þetta eigi að vera bautasteinn hans eftir kjörtímabilið. Hann sér kannski ekki fram á að hann ríði feitum hesti í framhaldinu, svo að þetta lyktar svolítið af því að framkvæmdinni eigi að hraða sem mest og afgreiðslu þessa máls og henda skjóðunni inn fyrir gullna hliðið.
En mér finnst það sjálfsögð krafa og ég held að allsherjar- og menntamálanefnd ætti auðvitað að gera kröfu til þess að fá skýrslu Capacent inn í umræðuna.