145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[15:17]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Hæstv. ráðherra nefndi það nokkuð í andsvörum áðan að það væri algengt þegar sameina ætti stofnanir að mótmæli kæmu upp. Auðvitað á það ekki bara við þegar sameina á stofnanir, við alls konar lagasetningu berast náttúrlega umsagnir og þær berast hver úr sinni átt og eru ólíkar.

Ég verð að segja það, virðulegi forseti, að ég man ekki eftir því að heyrt gagnrýni eins og um þetta frumvarp sem er öll úr einni átt. Ég hef ekki séð eina einustu umsögn eða heyrt einn einasta mann, nema þá hugsanlega þessa Capacent-gúrúa, mæla með því að fara þessa leið. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún haldi að ég sé eitthvað minnisskert eða hvort það geti verið rétt munað hjá mér að þetta sé mjög einslit gagnrýni.

Svo langar mig líka að nefna að mér fannst það alveg afskaplega kúnstugt þegar hæstv. ráðherrann kom allt í einu með það áðan að þessi stofnun mætti heita áfram Þjóðminjasafn Íslands.

Virðulegi forseti. Hvers lags eiginlega er það að ætla að færa starfsemi og gera lítið úr rannsóknaverkefni Þjóðminjasafnsins, flytja einhver stjórnsýsluverkefni inn og rugla allt systemið en láta stofnunina samt sem áður áfram heita Þjóðminjasafn Íslands? Mér finnst það vera til þess eins að rugla fólk í ríminu og breiða yfir vonda gerð.