menningarminjar o.fl.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér mál sem er afar umdeilt svo ekki sé fastar að orði kveðið. Lykilstofnanir og fagfélög mæla mjög eindregið og með góðum rökstuðningi gegn þessu máli. Forsætisráðherra kom á þingfund klukkan hálftvö til að mæla fyrir málinu og það hafði verið gert sérstakt samkomulag um dagskrá þingfundarins til að koma til móts við tíma hans þannig að þingmenn biðu eftir honum hér til hálftvö þegar hann sá sér fært að hefja umræðuna. Hann mælti fyrir málinu og ég spyr forseta hvort hann sé í húsi til að taka þátt í þessu samtali með okkur þingmönnum. Það hlýtur að teljast eðlileg krafa að ráðherrann taki þátt í umræðunni um svo umdeilt mál sem virðist vera mjög mikið áherslumál hjá hæstv. ráðherra og er langt frá því að vera hafið yfir vafa.
Forseti. Er hæstv. ráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í húsi?