145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[15:58]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil inna þingmanninn eftir því hvers vegna hún telji að ekkert samráð hafi verið haft við aðra flokka en flokk forsætisráðherra og samstarfsflokkinn um flutning málsins. Þetta er auðvitað málefni sem þingið hefur mjög látið til sín taka um áratugaskeið, staðið fyrir sérstökum fjárveitingum fyrir frumkvæði þingsins, bæði til fornminjarannsókna og sömuleiðis til húsverndar, húsverndarstyrkjum hefur raunar verið úthlutað af fjárlaganefnd árum saman með beinum hætti. Það mætti þess vegna vera hverjum manni ljóst að þingið mundi hafa töluverðar skoðanir á fyrirkomulagi þessara mála. Hvers vegna heldur þingmaðurinn að forsætisráðherra hafi ekki haft samráð við þingflokkana í þinginu um hvernig mætti takast góð samstaða um að skipa þessum málum?