145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[16:23]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegur forseti. Það er hægt að gera frumvörp vel og það er hægt að gera þau illa. Hér var nefnt áðan af hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar, Unni Brá Konráðsdóttur, frumvarp um millidómsstig sem við ræddum fyrr í dag, vandað samráð sem þar býr að baki. Ég get líka nefnt útlendingalög en þeirri vinnu hefur meðal annars verið stjórnað í þverpólitískri nefnd og þar er mikill lagabálkur um stórt og mikið mál sem hefur farið í ríkt umsagnarferli í ráðuneytinu; og mikið vildi ég frekar vera að ræða þau mál núna, vandað frumvarp sem hefði fengið yfirgripsmikið samráð í samfélaginu og þverpólitísk sátt ríkti um vegna þess að menn hefðu lagt sig fram um að ná henni. Þannig finnst mér að standa eigi að lagasetningu. Þannig finnst mér að ráðherrar og ráðuneyti eigi að nálgast þetta viðfangsefni.

Hvað erum við með hér? Enn og aftur ótrúlega umdeilt mál frá hæstv. forsætisráðherra því marki brennt að nánast allir sem starfa á því sviði sem frumvarpið tekur til og eru fagaðilar, menntaðir í þessum greinum, fornleifafræðingar, minjaverðir og fleiri, eru á móti því. Þeir lýsa veigamiklum rökum gegn áformum sem koma fram í frumvarpinu og maður les í gegnum greinargerðina og getur ekki séð að umsagnarferli hafi verið mjög ríkulegt þegar þetta var smíðað í ráðuneytinu. Ég þykist meira að segja hafa séð það í fréttum að þeir sem voru ráðnir til þess að vera í sérstökum samráðshópi í þessu kvarta yfir samráðsleysi, þannig að það er ótrúlegt þegar það virðast vera til nokkuð óljósir mælikvarðar á það hvernig á að standa vel að frumvarpsgerð þegar maður er ráðherra að þetta skuli viðhafast, að ráðherra skuli haga sér svona. Kannski er eitt og annað sem á einhvern hátt er til framfara í þessu máli og ég hlakka til að fjalla um það í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég sit í þeirri nefnd og mun verða þar, ég held ég geti sagt að ég mun verða mjög gagnrýninn á þetta frumvarp og hlakka til að heyra útskýringar þeirra sem sömdu það á því af hverju greinarnar eru eins og þær eru og af hverju er verið að fara í þennan leiðangur. Ég iða í skinninu að heyra svörin.

Ég skal segja hvernig frumvarpið slær mig. Það sem kemur upp í hugann er mjög frægt atriði í grínmyndinni Bananas eftir Woody Allen þar sem einræðisherra sem er nýbúinn að ná völdum í mjög vanþróuðu lýðræðisríki fer á tröppur þinghússins og lýsir yfir fyrstu lagasetningunni, þar sem 1. gr. er, að mig minnir, að allir þegnar landsins skuli frá og með deginum í dag ganga í nærbuxunum utan yfir buxunum og hin greinin er á þann veg að frá og með deginum í dag eigi þjóðartungumálið að vera sænska. Fullkomlega absúrd lagasetning. Algerlega út í hött. Augljóslega. Þannig slær þetta frumvarp mig.

Mér finnst þetta vera á skjön við það sem ég tel vera eðlilegt umhverfi og eðlilega umgjörð í öllum þessum málum. Fyrst eru það sameiningaráformin, þau öll. Það sem slær mann þar er að það er nýbúið að setja þessum sviðum öllum, þessum þætti þjóðfélagsins, lagaramma. Það var gert árið 2012. Þá varð Minjastofnun til. Það var meðal annars gert á grunni þess að Samkeppnisstofnun hafði gert athugasemdir og taldi mjög mikilvægt að stjórnsýsla og rannsóknir yrðu aðskildar í landinu. Ég veit ekki betur en það hafi verið talið mjög til bóta og við höfum náð að skýra þarna alla umgjörð þessara mála. Það er Minjastofnun sem fer með stjórnsýsluhlutverkið. Hún er leyfisveitandi þegar kemur að því að veita leyfi til fornleifarannsókna og hún er eftirlitsaðili og svo er Þjóðminjasafnið, það hefur verið að eflast sem rannsóknastofnun og er komið í öflugt samstarf við háskólasamfélagið í því hlutverki sínu og svo hafa menn lagt áherslu á það, og það á sér stoð í núgildandi lagaramma, að efla samstarfið þarna á milli, augljóslega þarf að vera samvinna en það er mjög mikilvægt að aðgreina þessar einingar. Það er nýbúið að gera þetta.

Ég geti ekki séð, við lestur þessa frumvarps, af hverju þarf að breyta þessu. Hvað var svona slæmt við þá lagasetningu sem var farið í 2012 á grunni mjög aðkallandi athugasemda, t.d. frá Samkeppniseftirlitinu? Hér er verið að stíga til baka. Hér á að sameina þessar stofnanir. Fornleifafræðingar segja nú mjög afdráttarlaust að hér sé verið að binda enda á 150 ára sögu Þjóðminjasafnsins. Maður leggur við hlustir þegar fornleifafræðingar segja svona. Svo les maður frumvarpið og þá eru þarna alveg stórfurðulegar greinar, til dæmis eins og það að Þjóðminjasafnið fer undir Þjóðminjastofnun og forstöðumaður Þjóðminjastofnunar, samkvæmt 28. gr. frumvarpsins, getur ákveðið upp á eigin spýtur að vera líka safnstjóri Þjóðminjasafnsins. Hann getur bara ákveðið það. Hann þarf ekkert að spyrja einn eða neinn. Það er lýsandi fyrir viðhorfið til Þjóðminjasafnsins í þessu frumvarpi. Maður getur ekki séð að það verði sjálfstæð rannsóknastofnun. Mér finnst hún með ólíkindum þessi lagagrein.

Þannig að sameiningaráformin í þessu, ég er ekkert að fjalla um mögulegan fjárhagslegan ávinning, ég er bara að fjalla um að það er algjörlega órökstutt af hverju þarf að hverfa til baka með þær breytingar sem voru gerðar 2012, voru gerðar á faglegum grunni. Af hverju þarf að vega svona að sjálfstæði Þjóðminjasafns Íslands sem rannsóknastofnunar, mjög mikilvægrar rannsóknastofnunar í landinu? Til hvers? Svarið liggur kannski í hinum þætti málsins, en ég er búinn að aðgreina þetta í huganum, annars vegar er það þessi sameining og hins vegar er það tilfærsla á valdi. Sú tilfærsla, sá þáttur frumvarpsins, það er einkum hann sem minnir mig á Bananas eftir Woody Allen.

Þessi tilfærsla á valdi — það kemur fram í 11. gr., þar sem segir:

„Þjóðminjastofnun gerir tillögur til ráðherra um friðlýsingu og afnám hennar hvað varðar fornleifar, skip og báta.“

En hins vegar segir:

„Ráðherra tekur ákvörðun um friðlýsingu og afnám hennar hvað varðar hús og mannvirki sem og samstæðu húsa.“

Í núgildandi lögum er ekki gerður neinn greinarmunur á skipum og bátum og fornleifum, mannvirkjum, húsum og húsaröðum. Þetta er allt talið menningarverðmæti sem Minjastofnun gerir tillögur um til friðlýsingar, gerir þær á faglegum grundvelli og sendir þær tillögur til ráðherra. En af hverju er frumvarpshöfundur að skipta þessu upp núna? Þjóðminjastofnun eftir sem áður, eða Minjastofnun eins og það er núna, á að fjalla um fornleifarnar, skipin og bátana, en ráðherra hann á að friðlýsa húsin og mannvirkin.

Samkvæmt frumvarpi sem var merkilegt nokk samþykkt á síðasta þingi um vernd sögulegra byggða, þá hefur ráðherra vald yfir þeirri friðlýsingu líka. Þannig að hæstv. forsætisráðherra er í þessu tilviki að fá, með þessu frumvarpi, allsherjarvald yfir friðlýsingu byggða og húsa og mannvirkja og húsaraða á Íslandi. Ráðherra er einstaklingur. Við vitum aldrei almennilega nema á fjögurra ára fresti hver hann er. Við vitum ekkert hver verður ráðherra þessara mála eftir næstu kosningar. Við vitum það ekki. Kannski er það bara einhver aðili sem hefur engan áhuga á þessu og hefur engan áhuga á því að friðlýsa hús, engan áhuga á því að vernda byggðir. Kannski er hann bara mjög verktakalega sinnaður og vill bara eyðileggja þetta allt saman. Hvaða hljóð heyrist þá úr strokki? Núna er sitjandi ráðherra, sem gott og vel hefur áhuga á því að friðlýsa hús. Fínt. Gott fyrir hann. Ég hef það líka. En svona komum við ekki ákvörðunum fyrir. Svona eru ákvarðanir ekki teknar. Þær eru teknar af faglegum aðilum. Þær eru teknar af stofnunum og þær eru teknar af þeim sem gjörst þekkja til. Annars fer allt í óefni.

Dæmin sem maður veltir fyrir sér hérna: Fyrr í umræðunni var því velt upp og því var velt upp líka í umræðunni um vernd sögulegra byggða. Hvað ef ráðherra hefur áhuga á sumum íþróttagreinum eða leikvöllum barna eða vill koma á fleiri sparkvöllum án dekkjakurls? Á hann þá bara að taka þann málaflokk til sín úr skipulagslögum og taka yfir ákvörðunarvaldið? Ég hef vissulega áhuga á húsafriðun og gömlum húsum og allt það og er nú að gera upp eitt hús sjálfur ásamt eiginkonu minni, ég hef líka áhuga á umgengnismálum og forsjármálum og hef svolítið verið að tjá mig um það. Hvað ef ég yrði nú forsætisráðherra sem litlar líkur eru á? Ætti ég þá að fá það í gegn með forsetaúrskurði að málefni barnalaga og barnaverndarlaga skyldu vera undir forsætisráðuneytinu og koma síðan hérna inn með frumvörp um að úrskurðir í umgengnismálum, sem hafa verið mjög umdeildir, á vegum sýslumanna skuli núna felldir af ráðherra? Ég meina: Er þetta ekki alveg fullkomlega sambærilegt? Og ég mundi þá einhvern veginn reyna að rökstyðja það vegna þess að ég hefði svo mikla þekkingu á þessu þá yrðu mínir úrskurðir í umgengnismálum og forsjármálum æðislega réttlátir. En þegar menn sjá svona og íhuga svona viðkvæm dæmi, þá sjá menn hversu fáránlegt þetta er. Sama hversu ánægðir eða óánægðir menn eru með núverandi fyrirkomulag þá væri það fullkomlega fáránlegt ef ég eða annar ráðherra mundi fara með úrskurðarvald til dæmis í umgengismálum. Eða bara að ráðherra tæki til sín ákæruvald. Er það ekki bara næsta skref að koma hérna með lög varðandi dómsmál og fela ráðherra ákæruvald vegna þess að ráðherra er svo æðislega mikill áhugamaður um sakamál? Þetta er svo ævintýralega mikil vitleysa.

Ég vil líka vekja athygli á því í niðurlagi ræðu minnar að hér erum við ekkert að tala um léttvæga hluti. Við erum að tala um það að ráðherra fær bara ákveðinn veldissprota, hann fær sprota sem heitir friðlýsing. Hann getur beitt honum. Hann getur sagt: Heyrðu, ég ætla bara að friðlýsa húsið þitt, ligga-ligga-lá, bara búið hérna, komið, þú mátt ekki gera neitt við húsið þitt meira. Maður kaupir kannski hús. Ég var og fjölskylda mín að kaupa hús fyrir þremur árum, gamalt hús. Við erum að vinna að endurbyggingu þess. Í hvernig þjóðfélagi vill maður lifa hvað þetta varðar? Maður vill ekki eiga það á hættu að pólitískur andstæðingur manns friðlýsi húsið, komi bara og segi: Heyrðu, þetta er friðlýst núna. Þetta er ansi merkilegt hús og þetta eru þjóðmenningarleg verðmæti í húsi, núna er þetta friðlýst og ráðherra ákveður það.

Ég vil biðja fólk að íhuga hversu mikið inngrip þetta er inn í eignarrétt, inn í friðhelgi heimilis, inn í sjálfstæði fólks, inn í athafnafrelsi, inn í það að geta með einhverjum hætti átt réttmætar væntingar til einhvers. Þannig ég velti fyrir mér af hverju í ósköpunum ekki var ástæða til þess, vegna þess að það segir í greinargerðinni að það hafi ekki verið gert, að athuga hvort ákvæði frumvarpsins samrýmdust ákvæðum stjórnarskrár. Samrýmist það ákvæðum stjórnarskrár að ráðherra hafi svona mikið vald yfir eigum fólks að það geti friðlýst þær? Þegar mann langar kannski að flytja friðlýst hús samkvæmt ákvæðum frumvarpsins, ef mann langar að flytja það, fara með það eitthvert annað, þá þarf maður að spyrja ráðherra. Maður þarf að spyrja ráðherra að því. Hann getur sagt nei. Hver er staða manns gagnvart þessu valdi?

Svo er eitt mjög merkilegt. Það er gefið í hvað varðar verndarsvæði í byggð. Það er sagt hérna í 35. gr. að sinni sveitarstjórn ekki skyldu samkvæmt 1. mgr. 4. gr. um mat á gildi byggðar þá getur ráðherra metið gildi byggðar innan staðarmarka sveitarfélagsins (Forseti hringir.) og tekið ákvörðun um að hún skuli vera verndarsvæði. Hann getur bara sett inn sérstakt ákvæði um það umdeilda mál (Forseti hringir.)sem hnykkir á því að ráðherra geti farið gegn sjálfsákvörðunarvaldi sveitarfélaga, (Forseti hringir.) svo að ég minnist nú á annað ákvæði stjórnarskrár sem hefði kannski átt að samkeyra þetta frumvarp með.