menningarminjar o.fl.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við ræddum fyrr um mál sem er að sumu leyti svipað og hv. þingmaður nefnir illa undirbúin mál úr forsætisráðuneytinu. Það vill svo til að utanríkisráðherra hefur líka ítrekað komið fram með vond mál og illa undirbúin, til að mynda um niðurlagningu Þróunarsamvinnustofnunar. Þá varð hv. þm. Vilhjálmi Bjarnasyni að orði að það væri ekki rétt að vera að skakast til með stofnanir að óþörfu, það var þannig sem hann orðaði það. Hér er verið að gera það vegna þess að það er engin fagleg eða efnahagsleg rök fyrir því að gera þetta.
Ég skil hv. þingmann þannig að hann telji óeðlilegt miðað við þann lærdóm sem við ætluðum að draga af hruninu, efnahagslegu og pólitísku hruni, að þetta mál fari í gegnum þingið og fari það í gegnum þingið þá sé það til marks um að meiri hlutinn hafi ekki dregið slíkan lærdóm.