menningarminjar o.fl.
Frú forseti. Mér finnst rétt við upphaf þessarar umræðu að rifja það upp sem ég kom að hér stuttlega í andsvari áðan að við eigum tiltölulega nýleg lög um menningarminjar. Þau voru samþykkt hér á Alþingi 2012, ef ég man rétt. Þá tók Minjastofnun Íslands til starfa sem sameinuð stofnun Fornleifaverndar ríkisins og húsafriðunarnefndar. Sú endurskoðun sem birtist í þeirri lagasetningu byggði á mikilli vinnu við að fara yfir löggjöf frá 2001 þegar mjög gagngerar breytingar voru gerðar á umhverfi minjaverndar og minjavörslu í landinu.
Árið 2005 ákvað þáverandi hæstv. menntamálaráðherra að hefja endurskoðun þessara laga. Ég tók þá endurskoðun í arf þegar ég kom til starfa í ráðuneytinu 2009. Þá var settur á laggirnar faghópur sem fór yfir reynsluna, skilaði til ráðherra 2007 og síðan var farið í mjög umfangsmikið samráð með þeim aðilum sem starfa í þessu umhverfi. Niðurstaðan varð frumvarp sem samþykkt var á 140. þingi samhliða lögum um Þjóðminjasafn Íslands, nýjum safnalögum og lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa.
Það vekur athygli mína, frú forseti, að í greinargerð við frumvarpið kemur kafli um lögin 2001 og bent er á að ýmislegt hefði betur mátt fara, að ákvörðun um uppskiptingu verkefna á sviði minjavörslu um síðustu aldamót hafi haft umtalsverð áhrif á málaflokkinn, að verkaskipting stofnana hafa orðið óljós með klofningi fagumhverfisins o.s.frv., en lítið er vitnað til þeirra breytinga sem voru samþykktar í lögunum 2011 og 2013 þar sem verið var að endurskoða lögin frá 2001. Mér finnst það merkilegt, því að þar var vissulega rætt um það hvort rétt væri að stíga til baka og sameina aftur stjórnsýsluhlutann og safnahlutann sem er niðurstaðan í þessu frumvarpi í ljósi þess að ekki gekk nægjanlega vel með framkvæmd laga frá 2001, sem búið er að endurskoða síðan. Þá er sagt að nauðsynlegt sé að sameina krafta þessara stofnana og efla fagumhverfi og stjórnsýslu á málefnasviðinu og algjörlega skautað fram hjá þeirri miklu vinnu sem unnin var árum saman, fyrst á árunum 2005 til 2007, síðan þegar þráðurinn var tekinn upp aftur eftir hrun 2009 og farið í víðtækt samráð sem lauk með þessum lögum sem hlutu mikla umfjöllun hér á þingi. Svo fór að þrjú þessara frumvarpa voru samþykkt í einu, en mæla þurfti fyrir lögum um menningarminjar til þess að taka tillit til athugasemda Alþingis. Þannig að Alþingi var fyrir ekki meira en þremur árum búið að vinna mjög yfirgripsmikila vinnu, og yfir hana var algjörlega skautað í greinargerð með frumvarpinu. Það finnst mér dálítið merkilegt, satt að segja.
Sú hugsun læðist að mér, þegar ég les síðan fýsileikagreininguna, sem ég vitnaði til áðan — hún er væntanlega höfð til undirstöðu þegar frumvarpið er samið — að í raun hafi ákvörðun þegar verið tekin þegar fýsileikagreining var unnin. Það kemur til að mynda fram að þegar rætt hafi verið við starfsmenn þessara tveggja stofnana þá sé önnur stofnunin afskaplega neikvæð gagnvart ferlinu við það, það er mjög augljóst og hægt að lesa það út úr fýsileikagreiningunni. Í fýsileikagreiningunni kemur fram sú niðurstaða að þetta sé einföldun í málaflokki minjaverndar á Íslandi frá sjónarhóli almennings og annarra aðila, sem væntanlega eru þeir sem þurfa að vinna samkvæmt lögunum, en hins vegar kemur ekki fram í fýsileikagreiningunni að rætt hafi verið við aðra aðila né heldur að rætt hafi verið við almenning. Ég velti því fyrir mér hvort almenningur hafi upplifað mjög mikið flækjustig í málefnum minjaverndar, hvort það sé það sem forsætisráðherra landsins hafi mestar áhyggjur af. Ég trúi því varla. Ég hef að minnsta kosti ekki hitt mjög marga á götum úti sem lýsa áhyggjum sínum af flækjustigi í málefnum minjaverndar. En þetta er markmiðið, það er að draga úr flækjustigi minjaverndar fyrir almenning í landinu.
Ég sé hins vegar ekki að frumvarpið verði endilega til þess að draga úr því flækjustigi, því eins og bent hefur verið á, bæði af safnafólki og af fornleifafræðingum, sem eru hópar sem lögðu mikið á sig í síðustu lotu við þetta lagaumhverfi og sendu inn miklar athugasemdir, eins og hv. þingmenn muna væntanlega mætavel — þeir sem voru hér þá að minnsta kosti — það virðist vera að þeim aðilum sem þurfa að vinna samkvæmt þessum lögum lítist ekki vel á tillögurnar fyrir fram.
Félag fornleifafræðinga sendi inn umsögn og hefur sent okkur þingmönnum bréf þar sem það mótmælir harðlega fyrirhugaðri sameiningu Þjóðminjasafns Íslands og Minjastofnunar Íslands, telja frumvarpið sýna að það beri hratt að, segja að það hafi verið unnið í sáralitlu samráði við fagaðila og segja að stöðugleika hafi verið náð í minjavörslu frá því Minjastofnun Íslands var stofnuð 2013, en fyrirliggjandi frumvarp sé afturför.
Ég velti því fyrir mér, af því að því er ekki svarað í greinargerðinni, hvað hæstv. ráðherra segi um þetta. Af hverju er ekki hugað að því hver reynslan er af lögunum frá 2013 og 2011, því sem lýtur að söfnunum og flutningi menningarverðmæta, af hverju er eingöngu vitnað til reynslu af lögum sem eru úr gildi fallin, lögunum frá 2001?
Síðan er það umsögn frá Félagi safna og safnamanna, FÍSOS, sem við þingmenn fengum senda. Þar lýsir stjórn Félags íslenskra safna og safnamanna yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar sameiningar Minjastofnunar Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Þar er lýst áhyggjum yfir að setja þurfi skorður á rannsóknastarf Þjóðminjasafns Íslands til þess að hægt sé að gæta sjónarmiða samkeppnislaga vegna sameininga af því að Minjastofnun hefur auðvitað stjórnsýsluhlutverki að gegna þegar kemur að rannsóknum og getur því ekki verið sjálfstæður rannsóknaaðili.
Stjórn safnamanna telur að þar dugi ekki til að Þjóðminjasafnið verði undirstofnun í þessari Þjóðminjastofnun því að þar sé ekki um raunverulegan aðskilnað framkvæmdar- og stjórnsýsluvalds að ræða. Ég nálgaðist þetta verkefni, þegar þetta var skoðað síðast, ekki með neinar fyrirframskoðanir á því hvort þessar stofnanir ættu að vera ein eða tvær, alls ekki, en þá fengum við mjög svo sterk viðbrögð úr fræðasamfélaginu, úr fagsamfélaginu í kringum þessi mál, að þetta yrði að vera aðskilið, að það yrði að vera lykilleiðarljós í breytingum á lögum og endurskoðun laganna frá 2001 að við ættum ekki að hverfa frá því. Ég tel ekki að þetta frumvarp sé nægjanlega undirbyggt, hvorki í fýsileikagreiningunni né í athugasemdunum við lagafrumvarpið.
Í fýsileikagreiningunni er fyrst og fremst rætt um fjárhagslegan sparnað og hugsanlegar frekari sameiningar. Mér finnst það líka vera áhyggjuefni, þegar ég les hér í fýsileikagreiningunni — þar sem verið er að tala um alla sem upplifa minna flækjustig með þessari sameiningu — að þar er beinlínis sagt að skipulag stofnunarinnar geti opnað á viðbótarsameiningu verkefna annarra höfuðsafna, þ.e. Listasafns Íslands og Náttúruminjasafns Íslands. Það er ekki verið að leggja það til hér. En ég spyr: Ef þetta er undirstaðan, sú greining sem unnin er hér á einhverjum mánuðum — vinna við hana hófst í desember 2015 — og hefur ekki farið í neitt opið samráðsferli eins og maður mundi gjarnan vilja sjá; ef það er hugsunin að hér eigi markvisst að fækka stofnunum á sviði menningar í landinu þá er það stórpólitísk ákvörðun, ef það er sú stefna sem hefur verið tekin. Ég undrast það að ríkisstjórn sem sérstaklega hefur kennt sig við þjóðmenningu — sem er auðvitað öll sú menning sem við sköpum hér á Íslandi og er ríkasti þáttur í sjálfsmynd okkar — setji fram þá hugsun að ætlunin sé að búa til eina samræmda safna- og minjastofnun. Það er stórmál gagnvart öllu faglegu starfi á því sviði.
Ég sé ekki að það geti verið mikið hagsmunamál okkar sem þjóðar að við getum ekki einu sinni haldið úti þremur höfuðsöfnum; þó að vissulega sé eitt þeirra safna fjársvelt og hafi verið lengi og sé okkur öllum til skammar hvernig þau mál liggja.
Ég velti því fyrir mér — þegar ég les frumvarpið, því að það kemur ekki fram þar hvort rætt hafi verið við þær nefndir sérfræðinga sem eru ráðgefandi fyrir Minjastofnun þegar kemur að varðveislu húsa og fornleifa — hvort rætt hafi verið við þessa aðila. Ég fæ ekki séð það. Ég fæ ekki séð það út úr þessari greinargerð eða þessari greiningu. Eina fólkið sem hefur verið rætt við eru starfsmenn þessara stofnana og starfsmenn annarra stofnana eru algjörlega á móti málinu.
Ég sé ekki að neitt almennilegt samráð hafi verið haft. Þegar hv. allsherjar- og menntamálanefnd fær frumvarpið til meðferðar bíður hennar gríðarlega stórt og mikið verkefni, það er að vinna það samráð sem forsætisráðuneytið hefði í raun átt að vinna.
Tíminn líður hratt hér, þegar við ræðum þessi mál, en síðan er það svo að ég hef frá upphafi verið andsnúin því að þessi málaflokkur hafi verið færður frá mennta- og menningarmálaráðuneyti yfir í forsætisráðuneytið. Ég geri ekki lítið úr persónulegum áhuga hæstv. forsætisráðherra og oft ágætum sjónarmiðum um varðveislu húsa og menningararfs. Mér finnst hins vegar meira en lítið undarlegt að þessi málaflokkur heyri ekki undir mennta- og menningarmálaráðuneytið þar sem er skörun við safnastarf í landinu og við aðra menningu. Málaflokkur íslenskrar tungu varð til dæmis eftir í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þó að hann teljist væntanlega til þjóðmenningar svo að dæmi sé tekið. Ég átti samtal við hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra í þessari viku um heimsminjaskrá og þar kom upp að sá málaflokkur er í hálfgerðum ólestri af því að skyndilega eru þarna þrjú ráðuneyti sem þurfa að koma að málum. Mennta- og menningarmálaráðuneytið á enga formlega aðkomu í gegnum Þjóðminjasafnið eða Minjastofnun sem áður voru stofnanir þess, þannig að ef við erum að tala um að draga úr flækjustigi, ef við ætlum að hugsa hvernig við getum dregið úr flækjustigi Minjaverndar fyrir almenning í landinu og aðra aðila, eins og það er orðað svo skemmtilega í þessari greiningu, ættum við kannski að huga að því að færa þennan málaflokk til baka undir mennta- og menningarmálaráðuneytið þannig að þetta geti verið allt á einum stað. Þar með væri dregið úr flækjustigi, fyrir utan það að við gerum ekki lítið úr þeirri sérfræðiþekkingu sem þar er í húsi.
Síðan er það væntanlega síðasta atriðið sem ég hef tíma til að nefna og það er sú tillaga sem hér er, þ.e. að verkefni sem lúta að friðlýsingu húsa og mannvirkja og afnámi slíkra friðlýsinga færast frá Minjastofnun Íslands, sem hefur haft þessi verkefni með höndum, til ráðherra. Sama gildir um hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð.
Þá erum við komin á enn einn furðustaðinn í þessari stjórnsýslu allri þar sem unnið hefur verið að því að efla þennan faglega þátt í kringum friðlýsingar húsa og Minjastofnun hefur fengið meira vægi í því ferli þó að ráðherra hafi haft staðfestingarvaldið með höndum. Með lögum um verndarsvæði í byggð var þetta frumkvæði að friðlýsingu og verndun fært til ráðherra og hér er verið að færa enn meira vald í einstökum friðlýsingum til ráðherra sem er auðvitað ekki alltaf sami ráðherrann. Ég velti því fyrir mér hvort góð stjónsýsluleg rök séu fyrir því, eða skynsemisrök, að málaflokkar og lög taki svona ríkt mið af því hver gegnir embættinu hverju sinni. Ég held að engum dyljist að málaflokkurinn var færður yfir vegna áhuga hæstv. forsætisráðherra á honum, og ég velti því fyrir mér hvort þessi tillögugrein, þar sem hæstv. ráðherra er falið enn meira vald við friðlýsingu húsa og minja, lúti ekki líka þessum persónulega áhuga. Getur Alþingi Íslendinga verið að taka ákvarðanir út frá því?
Mér finnst þetta einkennileg stjórnsýsla, frú forseti, og ég geri verulegar athugasemdir við að haldið sé áfram með þessum hætti, að færa slíkt vald yfir til ráðherra. Mér finnst þetta vera á kolrangri leið. Við sem eigum að vera að efla faglegt starf, skýra betur stjórnsýsluna, hlúa vel að þessum góðu og gegnu stofnunum, Þjóðminjasafninu, því glæsilega safni, og Minjastofnun sem hefur þetta mikilvæga stjórnsýsluhlutverk með höndum — það er mikilvægt að efla þessa málaflokka og þeir hafa fengið aukna fjármuni undir forsætisráðuneytinu og mér hefur fundist það ágætt þó að ég hefði viljað sjá önnur höfuðsöfn efld á sama hátt. En við eigum svo sannarlega ekki að hverfa frá þeim markmiðum að fagleg vinnubrögð séu númer eitt, tvö og þrjú í þessum viðkvæmu málaflokkum. Við eigum að sýna þessum málaflokkum þann sóma. Við getum ekki látið persónulegan áhuga ráða för við lagasetningu hér á þingi. Því verð ég að segja það, frú forseti, ég er búin með tíma minn, að ég held að hér skorti verulega mikið á samráð, undirbúning og skýra faglega sýn.