145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[17:54]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Fleiru er haldið fram í þessari greinargerð. Til dæmis er sagt að verið sé að nálgast kerfið eins og það er annars staðar á Norðurlöndum. Svo segir að að vísu sé það eitthvað öðruvísi í Svíþjóð og sérstaklega er nefnt að ef þetta kerfi komist á verði það líkt kerfinu í Noregi.

Ég hef lesið grein í blöðunum eftir Þóru Pétursdóttur, held ég að hún heiti, sem heldur því beinlínis fram að þetta sé ekki rétt. Er ekki nokkuð alvarlegt, hv. þingmaður, ef við fáum greinargerð sem er hálfsannleikur? Ég ætla að leyfa mér að segja að þetta sé hálfsannleikur. Þarna er sleppt öllum áhrifum og því sem var breytt í löggjöfinni 2011 og 2013. Það er horfið. Ég vil halda því fram, og langar að athuga hvort hv. þingmaðurinn geti tekið undir það með mér, að verið sé að hverfa í þessum málefnum aftur fyrir löggjöfina sem sett var 2001, og ekkert af þeim framförum sem urðu í nýju löggjöfinni — sú löggjöf er þeim mun síður tekin áfram.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji ekki nokkuð öruggt að eftir næstu kosningar eða eftir að ný stjórn hefur verið mynduð hér í landi verði þessi málefnaflokkur fluttur aftur inn í menntamálaráðuneytið og þá þurfi að byrja á því að vinda ofan af þeirri vitleysu sem gerð (Forseti hringir.) hefur verið í þeim efnum.